15-18 ára piltar
15-18 ára stúlkur
Guðjón vallarmet GSG 2025 01

GKG átti glæsilega fulltrúa á Unglingamótaröðinni og Golf 14 mótunum sem fóru fram dagana 23.–25. maí á Kirkjubólsvelli í Sandgerði.

Í piltaflokki 15–18 ára sigraði Gunnar Þór Heimisson mótið á frábæru skori, samtals 17 höggum undir pari eftir þrjá hringi. Arnar Daði Svavarsson og Guðjón Frans Halldórsson voru rétt á eftir, Arnar Daði á -14 í öðru sæti og Guðjón á -13 í þriðja sæti og sýndu þeir golf og stöðuleika um helgina.

Á öðrum degi sló Guðjón Frans vallarmet Kirkjubólsvallar með hring upp á 62 högg eða 10 undir pari vallarins. 29 högg á fyrri nýju og 33 högg á seinni níu holunum. Níu fuglar, einn örn, sjö pör og einn skolli. Frábært spilamennska hjá Guðjóni.

Í stúlknaflokki 15–18 ára varð Elísabet Ólafsdóttir í öðru sæti á +5 eftir þrjá hringi og fast á hæla hennar komu svo þær Eva Fanney Matthíasdóttir í fjórða sæti á +6, Elísabet Sunna Scheving í fimmta sæti á +9, Embla Hrönn Hallsdóttir í 6.-7. sæti á +10. Mjög flott golf hjá þeim um helgina.

Nánari upplýsingar um úrslit í mótinu má finna á: Unglingamótaröðin í Sandgerði

14 ára og yngri drengir - 36 holur copy
14 ára og yngri stúlkur - 9 holur copy
GOLF14-logo-r03fc3mk16npwnkrg48fu6fy6ibf86pdbw237t07sw

Í Golf 14 mótinu, þar sem kylfingar 14 ára og yngri keppa. Í flokki 14 ára og yngri drengja – 36 holur spilaði Matthías Jörvi Jensson á pari vallar og varð í 3. sæti og Emil Máni Lúðvíksson var á ein höggi yfir pari og endaði í 4.-5. sæti. Skammt á eftir þeim kom Jón Reykdal Snorrason í 6. sæti á +7.

Í flokki 14 ára og yngri stúlkna – 36 holur varð Hanna Karen Ríkharðsdóttir í 4.-5 sæti á +37.

Í flokki 14 ára og yngri drengir – 9 holur sigraði Kristján Darri Guðnason á +21.

Í flokki 14 ára og yngri stúlkur – 9 holur sigraði Kristín Björg Gunnarsdóttir á +13.

Þá sigraði Embla Dröfn Hákonardóttir í flokki 12 ára og yngri stúlkna – 9 holur á +12.

Nánari upplýsingar um úrslit í mótinu má finna á: Golf14 í Sandgerði

GKG sendi flesta keppendur í bæði mótin — alls 20 í Unglingamótaröðina og 15 í Golf 14.

Frábær árangur hjá þessum flottu kylfingum um helgina. Við hlökkum til að fylgjast með ykkur öllum á komandi mótum í sumar.

Áfram GKG!