Ágætu félagar.
Vegna mikillar eftirspurnar þá bætum við við námskeiðum hjá Hlöðveri. Námskeiðin henta breiðum hópi kylfinga, allt frá byrjendum til mið/háforgjafarkylfinga. Hópastærð er takmörkuð við fimm manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem eru í boði, en skráning fer fram með því að senda tölvupóst á ulfar@gkg.is. Eftirfarandi námskeið eru blönduð kk og kvk:
Námskeið 1 kl. 17-18 mán 24.8 og 26.8 – tvö skipti (sveifla og stutta spil) kr. 6.000
Námskeið 2 kl. 18-19 mán 24.8 og 26.8 – tvö skipti (sveifla casino og stutta spil) kr. 6.000
Námskeið 3 kl. 19-20 mán 24.8 og 26.8 – tvö skipti (sveifla og stutta spil) kr. 6.000
Í sveiflutímanum er lögð áhersla á lengri innáhögg og teighögg. Í stutta spils tímanum er áhersla á há innáhögg og glompuhögg.
Að auki bjóðum við upp á eins skiptis námskeið á þriðjudaginn þar sem áhersla er á vipp og pútt.
Stuttaspils námskeið (vipp og pútt) 4 kl. 17-18 þri 25.8 – eitt skipti kr. 3.000
Stuttaspils námskeið (vipp og pútt) 5 kl. 18-19 þri 25.8 – eitt skipti kr. 3.000
Kennari er Hlöðver Guðnason, PGA.
Greiðsluupplýsingar: Banki 0318 – 26 – 176, kt. 650394-2089
Skýring: v/námskeið og nafn. Senda kvittun á ulfar@gkg.is
Á námskeiðunum er lögð áhersla á grunnatriðin og góðar æfingar fyrir hvern hluta leiksins. Þar sem hópastærð er takmörkuð við fimm manns þá fær hver og einn persónulega nálgun einnig.
Kennsla og æfingaboltar eru innifalnir. Kennslan fer fram á æfingasvæðum GKG, mæting ávallt við pallana við áhaldahúsið.
Fyrstir koma fyrstir fá!
Nánari upplýsingar gefur undirritaður, en hægt er að skrá sig með því að senda póst á ulfar@gkg.is
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
8629204