Sveitakeppni GSÍ í flokki drengja 15 ára og yngri lauk á Vífilsstaðavelli í gærkvöldi með sigri A sveitar GR og eru þeir þar með Íslandsmeistarar þetta árið. Spútniklið keppninnar í ár, sveit GV, endaði í öðru sæti og A sveiti GK kom í þriðja.
Allt í allt heppnaðist mótið með ágætum og sýndu kylfingar oft snilldartilþrif. Veðrið var einnig með besta móti um helgina, þrátt fyrir leiðindaveður á föstudeginum. Mótstjórn vill koma til skila þökkum til allra sem tóku þátt, liðstjórum, þjálfurum og foreldrum fyrir frábæra helgi.
Smellið hér til að skoða frábæra myndaseríu frá mótinu