Nýverið lauk Bushnell mótaröðinni, en það er keppni meistaraflokkskylfinga karla og kvenna í GKG, GK og GO. Keppnin er haldin yfir sumarið og var keppnisfyrirkomulag þannig að leikinn var einn hringur hjá fyrrgreindum klúbbum, og giltu tvö bestu skorin í heildarkeppni þar sem verðlaunin fyrir besta árangur karla og kvenna voru Bushnell Tour V2 pinseeker fjarlægðarkíkir, en VOS hf. var styrktaraðili mótaraðarinnar. Markmiðið með mótaröðinni var að veita kylfingunum möguleika á að keppa oftar á hvítum teigum, sem undirbúning og æfingu fyrir Eimskipsmótaröðina.
Úrslit urðu þannig að í karlaflokki sigraði Guðjón Henning Hilmarsson, GKG, eftir frábæran hring á Keilisvellinum í gær, en hann lék á 65 höggum! Hann komst því uppfyrir Axel Bóasson, GK, sem leiddi mótið eftir tvo hringi. Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG, varð í þriðja sæti.
Í kvennaflokki sigraði Jódís Bóasdóttir, GK, en hún varð tveimur höggum á undan Ingunni Gunnarsdóttur, GKG. Nýkrýndur Íslandsmeistari, Tinna Jóhannsdóttir, GK, varð í þriðja sæti.
Hér má sjá úrslit í mótaröðinni, eins og fyrr segir töldu tveir hringir af þremur.
Karlaflokkur                                          GKG GO GK
1. Guðjón Henning Hilmarsson GKG        71    77    65    136
2. Axel Bóasson                        GK         67    73    70    137
3. Alfreð Brynjar Kristinsson    GKG        78    68    70    138
Kvennaflokkur
1. Jódís Bóasdóttir                    GK          75   79    74    149
2. Ingunn Gunnarsdóttir            GKG        87   77    74    151
3. Tinna Jóhannsdóttir                GK         83   77    79    156