Gunnlaugur Árni Sveinsson hafnaði í þriðja sæti á Pauma Valley Invitational í Kaliforníu í bandaríska háskólagolfinu. Hann lék hringina þrjá á 69-70-67 eða 7 höggum undir pari vallar og var eini kylfingurinn til að leika lokahringinn án þess að fá skolla eða skramba. 

Smelltu hér fyrir stöðuna:

Skólinn hans Gunnlaugs Árna, LSU, gerði sér lítið fyrir og sigraði með 10 högga mun en í mótinu voru sex af sjö bestu skólunum í efstu deild NCAA. 

Smelltu hér fyrir stöðuna í liðakeppninni:

Mótið var eitt allra sterkasta háskólamót á þessu skólaári en af 20 efstu kylfingum á heimslista áhugakylfinga voru 8 á meðal þátttakenda í mótinu.  

Gunnlaugur Árni hefur náð mögnuðum árangri á þessu skólaári. Hann hefur náð besta árangri allra nýliða í háskólagolfinu og þegar heimslisti áhugakylfinga verður uppfærður næsta miðvikudag mun hann í fyrsta skipti vera á meðal 50 bestu áhugakylfinga heims.

Mót Sæti Styrkleiki móts*
Visit Knoxville Collegiate 25. sæti 668
Valero Texas Collegiate 19. sæti 889
The Blessings Collegiate Invitational 1. sæti 422
Fallen Oak Collegiate Invitational 2. sæti 657
Ka’anapali Classic Collegiate Invitational 24. sæti 562
Puerto Rico Classic 3. sæti 827
40th Louisiana Classics 6. sæti 414
Pauma Valley Invitational 3. sæti 900+

*Styrkleiki móts skv. heimslista áhugakylfinga. Áhugamannamót hafa styrkleika á bilinu 10 til 1000. Íslandsmótið í höggleik 2024 var með 111 í styrkleika í karlaflokki.

Mót Sæti Styrkleiki móts*
Visit Knoxville Collegiate 1. sæti 668
Valero Texas Collegiate 11. sæti 889
The Blessings Collegiate Invitational 1. sæti 422
Fallen Oak Collegiate Invitational 2. sæti 657
Ka’anapali Classic Collegiate Invitational 5. sæti 562
Puerto Rico Classic 4. sæti 827
40th Louisiana Classics 1. sæti 414
Pauma Valley Invitational 1. sæti 900+