Gunnlaugur Árni Sveinsson hækkar um 20 sæti milli vikna á heimslista áhugakylfinga eftir frábæran árangur á Pauma Valley Invitational í Kaliforníu í bandaríska háskólagolfinu þar sem hann hafnaði í 3. sæti. Mótið er það sterkasta sem Gunnlaugur Árni hefur tekið þátt í á sínum ferli. Styrkleiki mótsins var 951 þar sem 1000 er hæsta mögulega gildi í áhugamannamótum. 

Smelltu hér fyrir stöðuna á heimslisti áhugakylfinga

Gunnlaugur Árni hefur náð mögnuðum árangri á þessu skólaári. Hann hefur náð besta árangri allra nýliða í háskólagolfinu og er í 11. sæti yfir bestu háskólakylfingana. Hann hefur nú hækkað upp um 1058 sæti á heimslistanum á einu ári og er í dag í 7. sæti á meðal bestu kylfinga Evrópu. 

Næsta mót Gunnlaugs Árna hefst 6. apríl Flórída.

Mót Sæti Styrkleiki móts*
Visit Knoxville Collegiate 25. sæti 668
Valero Texas Collegiate 19. sæti 889
The Blessings Collegiate Invitational 1. sæti 422
Fallen Oak Collegiate Invitational 2. sæti 657
Ka’anapali Classic Collegiate Invitational 24. sæti 562
Puerto Rico Classic 3. sæti 827
40th Louisiana Classics 6. sæti 414
Pauma Valley Invitational 3. sæti 900+

*Styrkleiki móts skv. heimslista áhugakylfinga. Áhugamannamót hafa styrkleika á bilinu 10 til 1000. Íslandsmótið í höggleik 2024 var með 111 í styrkleika í karlaflokki.

Mót Sæti Styrkleiki móts*
Visit Knoxville Collegiate 1. sæti 668
Valero Texas Collegiate 11. sæti 889
The Blessings Collegiate Invitational 1. sæti 422
Fallen Oak Collegiate Invitational 2. sæti 657
Ka’anapali Classic Collegiate Invitational 5. sæti 562
Puerto Rico Classic 4. sæti 827
40th Louisiana Classics 1. sæti 414
Pauma Valley Invitational 1. sæti 900+

Besti árangur á heimslista áhugakylfinga karla

Kylfingur Besta sæti Gerðist atvinnukylfingur
Gunnlaugur Árni Sveinsson 38.  
Gísli Sveinbergsson 99.  
Aron Snær Júlíusson 108. 2021
Ólafur Björn Loftsson 110. Vika 36, 2012
Haraldur Franklín Magnús 136. Vika 9, 2017
Axel Bóasson 136. Vika 21, 2016
Bjarki Pétursson 156. Vika 6, 2020

Besti árangur á heimslista áhugakylfinga kvenna

Kylfingur Besta sæti Gerðist atvinnukylfingur
Guðrún Brá Björgvinsdóttir 99. Vika 21, 2018
Andrea Bergsdóttir 170. Vika 33, 2024
Hulda Clara Gestsdóttir 197.  
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 222. Vika 39, 2014
Perla Sól Sigurbrandsdóttir 238.  
Ragnhildur Kristinsdóttir 299. Vika 29, 2024
Valdís Þóra Jónsdóttir 310. Vika 49, 2013
Auður Bergrún Snorradóttir 318  
Tinna Jóhannsdóttir 395. Vika 38, 2011

Hér er hægt er fylgjast með Gulla og skólaliði hans LSU

Hulda Clara Gestsdóttir hefur einnig verið að leika vel í vetur með liði sínu í Denver University og er komin í 197. sæti heimslista áhugamanna kvenna. Hér er hægt að fylgjast með Huldu og hennar liði.