Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að fresta Hatta- og kjólamóti GKG kvenna sem vera átti sunnudaginn 11. júní n.k. Þann dag eru tvö stór kvennamót sem fjöldi GKG kvenna ætlar að taka þátt í. Kvennanefnd GKG hefur því ákveðið að Hatta- og kjólamót GKG kvenna verði þriðjudaginn 11. júlí n.k. Spilaðar verða 9 holur. Verðlaunaafhending verður í mótslok, m.a. verða veitt verðlaun fyrir frábærasta kjólinn og smartasta hattinn, auk annarra verðlauna. Mótsgjald er kr. 2.000 og innifalið í verðinu er súpa, salat og brauð í mótslok.