Hatta- og kjólamótið 25. ágúst sl., úrslit:

 

GKG konur mættu flottar og fínar og með góða skapið á golfvöllinn þriðjudaginn 25. ágúst sl.  Veðrið var bara nokkuð gott miðað við árstíma og skemmtu 54 GKG konur sér vel á Mýrinni.

 

Conný Hansen var kjörin best klædda konan og Ásta Kristín Valgarðsdóttir fékk flest atkvæði fyrir flottasta hattinn.

 

Í punktakeppninni urðu eftirfarandi úrslit:

 

  • 1. Elísabet Þórdís Harðardóttir með 19 punkta. Fékk hún 10.000 kr. gjafabréf frá Hole in one.
  • 2. Linda Björg Pétursdóttir með 19 punkta. Fékk hún 7.500 kr. gjafabréf frá Hole in one.
  • 3. Jóhanna Helga Guðlaugsdóttir með 19 punkta. Fékk hún 6.000 kr. gjafabréf frá Hole in one.
  • 4. Þuríður Valdimarsdóttir með 18 punkta. Fékk hún 6.000 kr. gjafabréf frá Hole in one.
  • 5. Conný Hansen með 18 punkta. Fékk hún 4.500 kr. gjafabréf frá Hole in one.
  • 6. Sóley Stefánsdóttir með 18 punkta. Fékk hún 3.500 kr. gjafabréf frá Hole in one

 

Þóra Kristín Björnsdóttir var næst holu á holu 2 og fékk hún konfekt frá INNNES.

Conný Hansen var næst holu á holu 9 og  fékk hún konfekt frá INNNES.

 

Þau leiðu mistök urðu að úrslitin voru prentuð út áður en punktar frá síðasta hollinu voru vistaðir og breytti það úrslitum mótsins.  Beðist er velvirðingar á því.  Leiðrétting hefur verið gerð og eru úrslitin eins að framan greinir.

 

Minnum á lokamótið og lokahófið sem er laugardaginn 12. september n.k.  Nánari upplýsingar verða settar á netið síðar.

 

Kvennanefndin