Hatta- og kjólamótið 25. ágúst nk.

Hatta- og kjólamót GKGkvenna verður haldið þriðjudaginn 25. ágúst nk. í góðu veðri. Mótið er punktamót með leikforgjöf 40. Leiknar verða 9 holur á Mýrinni. Eingöngu verður leikið með einni kylfu að eigin vali og pútter. Leikið verður á grænum teigum. Við hvetjum ykkur til að mæta í kjólum, (pilsum), með hatta og með góða skapið, eins og venjulega. Innritun fer fram á golf.is. Ekkert keppnisgjald er í mótið en hver kona sem tekur þátt í mótinu kemur með einn vinning á um kr. 1.000 til 1.500. (Ef gleymist að koma með vinning er hægt að kaupa eitthvað í versluninni). Best klædda konan fær viðurkenningu og einnig er veitt viðurkenning fyrir flottasta hattinn. Viðurkenningarnar geta ekki fallið í hlut sömu konu.

Minnum á lokamótið og lokahófið sem verður sunnudaginn 6. september nk. og hefst lokahófið kl. 18:30. Nánari upplýsingar verða settar á netið síðar.

Kvennanefndin