Sumaræfingum er lokið, en æfingar halda þó áfram til 25. september. Ný æfingatafla tók gildi í gær, mánudag, og hægt er að skoða töfluna með því að smella hér. Þeir krakkar sem greiddu æfingagjald fyrir sumarið þurfa ekki að greiða fyrir haustæfingarnar.
Mæting er við pallana á æfingasvæðinu og minnum á að klæða sig eftir veðri.
Meginmarkmið æfinganna á þessu tímabili er að halda áfram að stunda golfið, enda eru vellirnir og veðrið oft í mjög góðu lagi. Góð ástundun skapar betri árangur og ánægju!
Áhersla verður lögð á að spila sem mest, þá helst á litlu æfingavöllunum okkar, og jafnvel á Mýrinni ef aðstæður leyfa.
Vetraræfingar hefjast um miðjan nóvember og verður vetraræfingataflan send út fljótlega. Nauðsynlegt er að skrá sig sérstaklega á vetraræfingarnar í Kórnum, og verða upplýsingar sendar út þegar æfingataflan er tilbúin.
Hlökkum til að sjá sem flesta mæta á æfingar eftir að skólar hefjast. Við munum síðan ljúka vertíðinni með uppskeruhátíð seinnipartinn í september, en dagskráin verður auglýst þegar nær dregur.
Bestu kveðjur,
Þjálfarar GKG