Nú liggur fyrir niðurröðun í hópa á æfingar hjá börnum og unglingum hjá GKG fyrir sumarið 2008 ásamt uppfærðri stundatöflu og má sjá þetta yfirlit á unglingasíðunni með því að smella hér, "Sumaræfingar 2008". Rétt um 130 krakkar eru skráðir til æfinga sem er nokkuð mikil fjölgun frá síðasta sumri og þurfti því að bæta við nokkrum hópum. Allar nánari upplýsingar veitir íþróttastjóri klúbbsins, Úlfar Jónsson. “