Landsliðskylfingurinn og klúbbmeistari GKG, Hlynur Bergsson, lauk keppni í gær á Maridoe Collegiate mótinu sem haldið var á Maridoe vellinum í Carrollton í Texas.

Mótið var gríðarlega sterkt en þarna léku fjórir sterkustu skólarnir samkvæmt stigalista NCAA háskólagolfsins (Pepperdine, Oklahoma, Texas Tech og Georgia Tech). Alls var 12 skólum boðið í þetta mót auk 12 sterkra einstaklinga. 

Hlynur leikur með North Texas háskólanum og hafnaði skólaliðið í 6. sæti. Hlynur lék fínt golf á erfiðum velli og hafnaði að lokum í 26. sæti af 72 keppendum. Hlynur lék á 77-75-73 = 225 höggum en sigurvegarinn var Kyle Hogan sem lék á 215 höggum, aðeins einu höggi undir pari sem gefur til kynna hversu erfiður völlurinn var.

Úrslitin má sjá hér.

Hér má sjá skemmtilegar myndir ofl. á Instagram síðu liðsins.

Gaman að fylgjast með “Lenny” sem hefur bætt sig jafnt og þétt eftir að hann byrjaði að spila með liðinu fyrir rúmlega ári síðan.