Hulda Clara Gestsdóttir og Aron Snær Júlíusson tryggðu sér Íslandsmeistaratitlana í golfi 2024 í gær! Þetta er í annað sinn sem þau fagna þessum titli en þau sigruðu bæði í fyrsta sinn árið 2021. 

Lokakafli Íslandsmótsins, sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru, var æsispennandi. Aron Snær lék á 14 höggum undir pari vallar sem er nýtt mótsmet.

Aron Snær lék á 270 höggum eða 14 höggum undir pari vallar, Aron Emil Gunnarsson, GOS, varð annar á 12 höggum undir pari, jafnir í þriðja sæti voru Böðvar Bragi Pálsson, GR og Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, á 9 höggum undir pari. Gunnlaugur Árni Sveinsson endaði í 5. sæti en hann lék þriðja hringinn á 63 höggum sem var nýtt vallarmet í Leirunni. Skorið í karlaflokki var mjög gott en alls léku 15 kylfingar samtals undir pari vallar. 

Aron Emil fékk Björgvinsskálina, sem er veitt þeim áhugakylfingi í karlaflokki, sem er á lægsta skorinu.

Hulda Clara lék á 289 höggum eða 5 höggum yfir pari vallar, Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, var á einu höggi á eftir, og Andrea Björg Bergsdóttir, GKG, varð þriðja á +8. 

Hulda Clara fékk Guðfinnubikarinn, sem var veittur í fyrsta sinn, þeim áhugakylfingi sem leikur á besta skorinu í kvennaflokki. 

Alls tóku 96 karlar þátt í mótinu, þar af 19 úr GKG. Í kvennaflokki var metfjöldi en alls hófu 57 leik, þar af 13 úr GKG.

Innilega til hamingju Hulda og Aron!

Smelltu hér fyrir úrslit:

Smelltu hér fyrir myndasafn:

Íslandsmótið í golfi 2024 – allar fréttir

Sjá nána umfjöllun um Íslandsmótið 2024 og sögu mótsins hér.