Hulda Clara Íslandsmeistari í flokki 15-16 ára
Hulda Clara Gestsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er Íslandmeistari í flokki 15-16 ára 2018 á Íslandsbankamótaröð unglinga.
Hulda Clara lék hringina þrjá á Hólmsvelli í Leiru á 236 höggum, Kinga Korpak úr GS og Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr GA komu þar á eftir á 246 höggum.
1. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG (75-81-80) 236 högg (+20)
2.-3.Kinga Korpak GS (80-89-77) 246 högg (+30)
2.-3. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA (82-80-84) 246 högg (+30)
Ingvar Andri Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára
Ingvar Andri Magnússon úr GKG er Íslandsmeistari í 17-18 ára flokki pilta á Íslandsbankamótaröð unglinga. Sverrir Haraldsson úr GM varð annar, Viktor Ingi Einarsson úr GR og Jón Gunnarsson úr GKG voru jafnir í þriðja sæti.
Ingvar Andri sigraði einnig í þessum aldursflokki á Íslandsmótinu 2017.
1. Ingvar Andri Magnússon, GKG (72-77-71) 220 högg (+4)
2. Sverrir Haraldsson, GM (73-75-74) 222 högg (+6)
3.-4 Viktor Ingi Einarsson, GR (72-80-74) 226 högg (+10)
3.-4 Jón Gunnarsson, GKG (75-74-77) 226 högg (+10)
Dagbjartur Íslandsmeistari annað árið í röð í flokki 15-16 ára
Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er Íslandmeistari í flokki 15-16 ára á Íslandsbankamótaröð unglinga. Dagbjartur lék hringina þrjá á Hólmsvelli í Leiru á pari vallar sem er glæsilegt skor.
Þetta er annað árið í röð sem Dagbjartur fagnar Íslandsmeistaratitlinum í golfi í þessum aldursflokki á Íslandsbankamótaröðinni. Svanberg Addi Stefánsson úr GK varð annar og Sigurður Arnar Garðarsson úr GKG varð þriðji.
1. Dagbjartur Sigurbrandsson, GR (71-70-75) 216 högg (par)
2. Svanberg Addi Stefánsson, GK (71-76-76) 223 högg (+7)
3. Sigurður Arnar Garðarsson, GKG (69-79-80) 228 högg (+12)
Amanda Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára
Amanda Guðrún Bjarnadóttir, úr Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, er Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára á Íslandsbankamótaröðinni. Árný Eik Dagsdóttir úr GKG varð önnur og Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr GOS varð þriðja.
1. Amanda Guðrún Bjarnadóttir, GHD (84-76-85) 245 högg (+29)
2. Árný Eik Dagsdóttir, GKG (84-84-82) 250 högg (+34)
3. Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS (77-84-90) 251 högg (+35)
Bjarni Þór Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri
Bjarni Þór Lúðvíksson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er Íslandsmeistari flokki 14 ára yngri í golfi á Íslandsbankamótaröð unglinga.
Bjarni Þór lék á +3 samtals á þremur keppnishringjum á Hólmsvelli í Leiru – sem er frábært skor. Dagur Fannar Ólafsson úr GKG v og Ísleifur Arnórsson úr GR voru jafnir í 2.-3. sæti á +19 samtals.
1. Bjarni Þór Lúðvíksson, GR (74-76-69) 219 högg (+3)
2.-3. Dagur Fannar Ólafsson, GKG (76-81-78) 235 högg (+19)
2.-3. Ísleifur Arnórsson, GR (76-81-78) 235 högg (+19)
Perla Sól Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri
Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur er Íslandsmeistari í stúlknaflokki 14 ára og yngri 2018 – á Íslandsbankamótaröð unglinga.
Nína Margrét Valtýsdóttir, GR, varð önnur og María Eir Guðjónsdóttir úr GM varð þriðja. Íslandsmótið fer fram hjá Golfklúbbi Suðurnesja, Hólmsvell í Leiru.
1. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR (83-77-85) 245 högg (+29)
2. Nína Margrét Valtýsdóttir. GR (85-91-77) 253 högg (+37)
3. María Eir Guðjónsdóttir, GM (81-94-81) 256 högg (+40)
Jóhannes Íslandsmeistari í flokki 19-21 árs
Jóhannes Guðmundsson úr Golflkúbbi Reykjavíkur er Íslandsmeistari í flokki 19-21 árs á Íslandsbankamótaröðinni.
Hann hafði betur í umspili um sigurinn gegn Hákoni Erni Magnússyni úr GR – en þeir voru báðir á -1 samtals eftir 54 holur. Hákon fékk fugl á lokaholunni í dag og jafnaði þar með við Jóhannes. Þeir léku 16., 17., og 18. holuna á Hólmsvelli í Leiru til að knýja fram úrslit. Þar hafði Jóhannes betur.
Þetta er annað árið í röð þar sem Jóhannes fagnar þessum titli – en keppt var í fyrsta sinn í þessum flokki árið 2017.
1. Jóhannes Guðmundsson, GR (72-73-70) 215 högg (-1)
2. Hákon Örn Magnússon, GR (70-75-70) 215 högg (-1)
3. Hlynur Bergsson, GKG (73-72-71) 216 högg (par)
Heimild: golf.is