Íslandsmót unglinga í holukeppni fór fram á Hólmsvelli í Leiru dagana 14.-16. ágúst. Eftirfarandi eru úrslit úr öllum flokkum:
María Björk Pálsdóttir, GKG, og Kristófer Karl Karlsson, GM, eru Íslandsmeistarar 2020 í flokki 19-21 árs í holukeppni.
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, og Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, eru Íslandsmeistarar í flokki 17-18 ára árið 2020 í holukeppni.
María Eir Guðjónsdóttir, GM, og Bjarni Þór Lúðvíksson, GR, eru Íslandsmeistarar 2020 í flokki 15-16 ára í holukeppni.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, og Veigar Heiðarsson, GA, eru Íslandsmeistarar í holukeppni í flokki 14 ár og yngri 2020.
Skor, úrslit og rástímar – smelltu hér:
19-21 árs flokkur
Kristófer Karl sigraði Aron Emil Gunnarsson úr GOS í úrslitaleiknum, 2/1. Daníel Ísak Steinarsson, GK, sigraði Inga Þór Ólafson, GM, í leiknum um þriðja sætið.
María Björk sigraði Ingu Lilju Hilmarsdóttur, GK, 5/4, í úrslitaleiknum. Íris Lorange Káradóttir, GK, sigraði Jónu Karen Þorbjörnsdóttur, GK, 3/2 í leiknum um þriðja sætið.
17-18 ára flokkur
Dagbjartur sigraði Böðvar Braga Pálsson, GR, í úrslitaleiknum 2/1. Tómas Eiríksson Hjaltested úr GR varð þriðji.
Hulda Clara sigraði Jóhönnu Leu Lúðvíksdóttur, GR, í úrslitaleiknum 1/0. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA, varð einnig þriðja.
15-16 ára flokkur
María Eir sigraði Katrínu Sól Davíðsdóttur, GM, í úrslitaleiknum, 2/1. Nína Margrét Valtýsdóttir, GR, sigraði Guðrúnu Jónu Þorsteinsdóttur Nolan, GKG, 3/2, í leiknum um þriðja sætið.
Bjarni Þór sigraði Gunnlaug Árna Sveinsson, GKG, 4/3 í úrslitaleiknum. Óskar Páll Valsson, GA, sigraði Jóhann Frank Halldórsson, GR, 2/0, í leiknum um þriðja sætið.
14 ára og yngri
Veigar Heiðarsson sigraði Markús Marelsson í úrslitum. Guðjón Frans Halldórsson varð þriðji eftir sigur gegn Hjalta Kristjáni Hjaltasyni.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, sigraði Fjólu Margréti Viðarsdóttur, í úrslitum. Pamela Ósk Hjaltadóttir sigraði Evu Kristinsdóttur í leik um þriðja sætið.