Það er vel við hæfi að formaður GKG ljúki hringnum sem GKG-ingur vikunnar núna þegar völlurinn okkar er að opna í dag.

Guðmundur er harður GKG-ingur og Bliki og hefur sinnt formennsku GKG frá 2006-2015, tók sér svo smá frí en kom svo galvaskur í formannsembættið 2018. 

Helstu upplýsingar:
Guðmundur Magnús Oddsson
Kópavogsbúi
77 ára og forgjöfin er 20.

Hvað dró þig að golfinu og hvenær?
Ég hef alla tíð verið mikið í félagsmálum og eins stundað alls konar íþróttir. Fyrir tæpum 25 árum hætti ég sem formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks og stuttu síðar hætti ég í bæjarstjórn

Sóley og Guðmundur

Kópavogs. Þá fannst mér ég þurfa að kynnast einhverju nýju og því ekki að prufa golfið? Annars var tengdapabbi minn einn af stofnendum golfklúbbs Ólafsfjarðar árið 1968 og reyndi oft að fá mig út á völl. Einhvern veginn heillaði golfið mig ekki á þeim tíma, en ég hef oft velt því fyrir mér hversu góður kylfingur ég væri í dag ef ég hefði byrjað 30 árum fyrr.

Hvers vegna valdirðu GKG?
Ég flutti í Kópavoginn 17 ára og hef alla tíð síðan átt þar heima. Það kom því enginn annar klúbbur til greina.

Mýrin eða Leirdalur?
Ég legg vellina nokkuð að jöfnu.

Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lent í á golfferlinum?
Það er svo fjölmargt sem ég gæti nefnt, en ef ég ætti að nefna eitt, þá væri það trúlega þegar ég fór holu í höggi. Það gerðist á 4. braut á Leirdalnum þann 12. júlí 2015. Þarna sannfærðist ég algjörlega um að það hefur ekkert með neina snilld að gera í golfi að fara holu í höggi, þetta er bara heppni og ekkert annað.

En það vandræðalegasta?
Fyrsta golfsettið keypti ég í Bónus og kostaði það rúmar 18 þúsund krónur. Þetta sett þótti ekki mjög merkilegt, en það dugði mér fyrstu árin. Svo gerðist það þegar ég var að spila 18. brautina á Leirdalnum og þurfti að slá nokkuð hátt, að ég tók níu járnið og sló að mér fannst frábært högg, en það reyndist ekki betra en svo, að hausinn á kylfunni fór lengra en boltinn og það sem þó var miklu verra var að litlu munaði að meðspilari minn fengi kylfublaðið í hausinn. Eftir þetta högg fannst mér tímabært að kaupa nýtt sett.

Eru golfmarkmiðin þín klár fyrir sumarið?
Já, að vera áfram betri en Sóley.

Verður leynivopn í pokanum?
You never know.

Ertu með einhverjar sérstakar væntingar varðandi vellina sjálfa?
Já, ég geri mér vonir um að vellirnir verði með allra besta móti, en þar ræður veðráttan miklu. Ef við fáum eins gott sumar og var í fyrra, þá veit ég að vellirnir verða frábærir.

Hvaða GKG mótum stefnirðu á að taka þátt í þetta sumarið?
Undanfarin ár hef ég látið nægja að taka þátt í Meistaramótinu og ég á von á að halda mig við sama plan í sumar.

Guðrún, Derrick, Vignir, Sóley, Randver og Guðmundur

Hvert er drauma GKG hollið þitt og hvaða utanfélagsmaður fengi að vera með í hollinu?
Það eru svo miklir snillingar í GKG að hvert holl sem ég spila í hverju sinni er mitt drauma holl. Það væri bara gaman að spila með annað hvort Rory eða Tiger.

 

Notaðir þú golfhermana  í vetur?
Ég fór þrisvar sinnum í hermana með Agga og náði engum árangri og mun því örugglega ekki nota þá með útigolfinu í sumar.

Uppáhalds holan á Leirdalnum?
Fjórða brautin. Þegar maður þarf ekki nema eitt högg til að klára brautina, þá verður hún alltaf uppáhalds.

Uppáhalds holan á Mýrinni?
Veit það varla, en mér finnst alltaf svolítið spennandi að leika 4. brautina.

Hver er uppáhaldsvöllurinn fyrir utan GKG?
Mér finnst alltaf gaman að spila golfvöllinn á Ólafsfirði. Það er skemmtilegur sveitavöllur og hæfilega erfiður.

Texas Scramble eða Betri bolti?
Texas Scramble.

Hver er uppáhaldskylfan?
Sex-járnið, sem ég nota mjög mikið og við allar mögulegar og ómögulegar aðstæður.

Áttu þér fyrirmynd í golfinu?
Nei.

 

Soffía, Agnar, Sóley og Guðmundur

Hvernig nestar þú þig út á golvöll?
Það er allur gangur á því, en oftast er maður með einhvern drykk og brauð. Þá er nauðsynlegt að vera með birdies pela.

Hver er staðan varðandi nýbygginguna í GKG og þær framkvæmdir Garðabæjar sem snerta  starfið í klúbbnum?

 

Við skrifuðum undir samning við Garðabæ um stækkun á golfskálanum þann 26. september 2019. Í 1.gr. samningsins segir m.a. að Garðabær lýsir því yfir að skerðingar á athafnasvæði GKG verði bættar að fullu, þannig að  aðstaða til  golfiðkunar verði ekki lakari eftir framkvæmdir en fyrir, GKG að kostnaðarlausu. Heildarstærð viðbyggingar er um 800 ferm. á einni hæð. Áætlaður heildarkostnaður vegna viðbyggingarinnar er 375 milljónir. Helgi Már Halldórsson arkitekt teiknaði viðbygginguna og aðalverktakar GG verk eru þeir sömu sem byggðu skálann. Áætlanir gera ráð fyrir að uppsteypu og frágangi  að utan væri lokið 15. maí n.k. og öllu verkinu lokið 1. september n.k. Nú vitum við ekki hvort veiran mun einhverju breyta hjá okkur varðandi frekari uppbyggingu, en næsta verkefni okkar er bygging á nýju áhaldahúsi og síðan nýr 9 holu völlur í stað Mýrarinnar.

 

Lokaorð!
Ég hef þá trú, að sumarið sem í hönd fer verði frábært golfsumar. Það er næsta víst, að kylfingar munu ferðast innanlands í sumar og ég bind vonir við að mikil fjölgun verði í öllum golfklúbbum. Vellir GKG opna í dag og við förum þá að spila golf af fullum krafti.