Birgi Leif þekkja flestir Íslendingar sem eitthvað fylgjast með íþróttum en hann hefur verið lengi að og sá íslenski kylfingur sem náð hefur lengst í atvinnumennsku erlendis. Afrekalistinn er langur en þar á meðal er hann sá eini til þessa sem hefur haldið þátttökurétti á evrópsku mótaröðinni og sigrað í áskorendamótaröð Evrópu. Hann hefur einnig landað flestum Íslandsmeistaratitlum, 7 slíkum, og á mikið eftir, enda eins og gott rauðvín, verður bara betri með aldrinum.
Aldur og forgjöf?
44 ára, +5.2 í forgjöf
Hvað dró þig að golfinu og hvenær?
Ég fékk þá frábæru hugmynd þegar ég var 12 ára gamall að þvælast með vinum mínum á takkaskónum upp á Garðavöll á Akranesi að prufa golf, ekki sé ég eftir því. Hef verið svo heppinn að kynnast bókstaflega „ást við fyrstu sýn“ tvisvar sinnum á lífsleiðinni, þegar ég sá konuna mína fyrst og þegar ég sló fyrstu kúluna mína fyrst 😉
Hvers vegna GKG?
Þegar ég flutti frá Akranesi þá var ég að leita mér að golfklúbbi á stór Reykjavíkursvæðinu, árið 2003 var félagi minn frá Akranesi Kristinn G. Bjarnason í GKG og var hann að stýra afreksstarfinu á þeim tíma. Ég hitti hann og Gunnlaug Sigurðson fyrrverandi formann GKG, heillaðist ég að metnaði og framtíðarsýn GKG. Langaði mig mikið til þess að taka þátt í að byggja upp sigurhefð og koma GKG í fremstu röð á Íslandi.
Mýrin eða Leirdalur?
Mýrin þegar ég hef lítinn tíma, frábær fyrir fjölskyldu- og hjónagolf 😉
Leirdalinn þegar ég er að sjá hvar leikurinn minn er staddur og hvað ég þarf að æfa, völlurinn er mjög krefjandi og þarf ég að slá vel til þess að ná góðu skori. Þannig að mér finnst gott að fara Leirdalinn, spila mjög djarft og reyna að ná sem flestum fuglum, þá veit ég hvar leikurinn minn stendur og einnig er Leirdalurinn skemmtilegur á fótinn sem bætir úthaldið.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lent í á golfferlinum?
Það að spila yfir 70 mót á European tour, slá metið í fjölda Íslandsmeistaratitla (7 sigrar) og sigurinn á Challenge tour í Frakklandi.
En það vandræðalegasta ?
Þegar ég ætlaði að klára 10cm pútt eftir glompuhögg á European tour og missti, hitti ekki einu sinni holuna. Það var sandur á milli og kenndi þetta mér góða lexíu, alltaf að þrífa kúluna eftir glompuhögg. En ráshópurinn hló mikið eftir á.
Eru golfmarkmiðin þín klár fyrir sumarið og má gefa upp hvaða leynivopn verður í pokanum?
Verð að viðurkenna það að í fyrsta skipti á mínum ferli þá er markmiðið ekki klárt fyrir sumarið hvað varðar minn leik en ég er með markmið að spila meira með fjölskyldunni og vinum en ég hef gert áður. Leynivopnið verður klárlega pútterinn (hann verður sjóðandi heitur í sumar, ég mun aldrei fá eins marga fugla og núna í ár) 😉
Ertu með einhverjar sérstakar væntingar varðandi GKG vellina inn í golfsumarið?
Að GKG verði völlurinn sem verður í besta standi á Íslandi. Umhverfið er svo æðislegt og möguleikarnir svo miklir.
Stefnurðu á að taka þátt í einhverjum GKG mótum þetta sumarið og hvert þeirra er uppáhalds?
Mótaskráin er ekki klár þetta árið hjá mér, en Meistaramótið er alltaf skemmtilegt og það er orðið alltof langt síðan að ég hef náð að taka þátt í því. Aldrei að vita nema að maður verði með. Hjóna og parakeppnin er spennandi mót að taka þátt í með konunni. Svo að lokum er alltaf gaman að vera með í Sumarsólstöðumóti Stella Artois.
Hvert er drauma GKG hollið þitt og hvaða utanfélagsmaður fengi að vera með í hollinu?
Það væri draumur að ná vinamótinu okkar þar sem ég og GKG-ingurinn Ottó Sig erum á móti GR-ingunum Stebba Már og Óla Már. Þeir nefnilega þora aldrei að keppa á Leirdalnum á móti okkur því þeim finnst hann svo erfiður 😉
Notaðir þú golfhermana í vetur og muntu nota þá með golfinu í sumar?
Já ég hef notað þá mikið bæði í kennslu og spilað nokkrum sinnum með vinum og fyrirtækjum. Ekki viss með að nota þá sumar nema þá í kennslu. Ég er af gamla skólanum þegar ég æfi mig sjálfur, ég tengi meira við boltaflugið beint, torfuförin, vindinn, leguna, og lyktina af grasinu. En Trackman getur verið gott til þess að núllstilla sig.
Uppáhalds holan þín á Leirdalnum?
Verð að segja tvær holur, 1. holan og 16. holan.
1. holan, ef þú ert ekki mættur til leiks þá tekur hún þig í bakaríið, auðvelt að fá skolla og einnig verðlaunar hún vel og getur gefið manni mikið sjálfstraust fyrir framhaldið.
16. holan er mjög krefjandi og kemur í lok hrings þar sem úrslitin geta ráðist á henni og einnig getur hún breytt mótum, hægt að fá örn þar og einnig sprengjur ef maður t.d er búinn að missa úthaldið og slær léleg högg eða tekur rangar ákvarðanir. Með smá breytingum gæti þetta orðið ein fallegasta hola landsins.
Uppáhalds holan þín á Mýrinni?
Hef alltaf verið mikilll aðdáandi 7. holunnar, þar er gaman að æfa driverinn. „Risk and reward“ hola.
Hver er uppáhaldsvöllurinn fyrir utan GKG?
Á Íslandi eru það: Akranes, Vestmannaeyjar og Korpan.
Erlendis: Lepoard Creek í Suður Afríku og Valderama á Spáni.
Texas Scramble eða Betri Bolta?
Betri bolti.
Hver er uppáhaldskylfan og í hvaða aðstæðum notarðu hana mest?
Driverinn, mitt sterkasta vopn og mér finnst sérstaklega gaman að nota hann á braut á par 5 holum.
Áttu þér fyrirmynd í golfinu?
Þegar ég ólst upp þá voru það Greg Norman og Seve Ballesteros. Núna finnst mér skemmtilegast að horfa á djarfa spilara eins og Rory, Koepka, Tiger. Gaman að horfa á sóknarbolta enda finnst mér sjálfum skemmtilegast að spila þannig bolta.
Hvernig nestar þú þig út á golfvöll?
Banani, hnetur, ein samloka (gróft brauð) með grænmeti. Nóg af vatni.
Hvað er lang, lang best við GKG?
Sjálfboðaliðarnir, hvað allir hafa verið samhuga og viljugir til þess að leggja sitt af mörkum í að koma GKG þangað sem félagið er í dag.