Eigum við eitthvað að ræða kvennastarfið sem fer fram í klúbbnum okkar og meistarana sem halda því gangandi árið um kring með golfviðburðum út í eitt og allskonar skemmtilegheitum? Við erum að tala um magnað starf sem galdrað er fram af snillingum og fyllt fjöri af frábærum kvenkylfingum GKG. Sum sé, 5 stjörnu combó! Ein af sprautum kvennanefndarinnar þetta golfárið er Fjóla Rós Magnúsdóttir, 38 ára Kópavogsbúi með 27,6 í forgjöf. Fjóla Rós er komin í nefndarstellingarnar fyrir golfsumarið framundan og líka búin draga fram fjarkann, áttuna og pútterinn, tilbúin í skemmtilegastasta slaginn sem hægt er að hugsa sér!
Hvað dró þig að golfinu og hvenær?
Eiginmaðurinn hann Ævar Rafn Þrastarson var búinn að reyna lengi að fá mig til að prófa en ég ætlaði ekki að fara í þetta „gamalmannasport“. Svo var auglýst kvenna golfnámskeið í íþróttahúsinu heima í Snæfellsbæ 2009 og þá var ekki aftur snúið, pantaði strax sett og byrjaði að mæta á völlinn sumarið eftir en byrjaði fyrir alvöru þegar ég flutti í bæinn 2016.
Hvers vegna valdirðu GKG?
Því það var stutt fyrir mig að fara og ég hafði heyrt af kvennastarfinu sem er mjög öflugt.
Mýrin eða Leirdalur?
Ég mæti mun oftar á Mýrina en finnst Leirdalurinn mjög skemmtilegur. Ég þarf bara að ná yngri dóttur minni líka í golf (sú eldri æfir með GKG) og þá getum við öll mætt saman á völlinn, þá myndi ég ekkert spá í hvað tímanum liði.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lent í á golfferlinum?
Félagsskapurinn og að vinna 4.flokk í Meistaramótinu 2017 (mátti ekki örugglega segja tvennt?).
En það vandræðalegasta?
Á 1.degi í Meistaramótinu 2019 lendir upphafsboltinn minn á 12.holu hjá trjánum vinstra megin. Ég finn kúluna og sé að ég get alveg sveiflað aftur án vandræða, set mig í stellingar og slæ flott högg EN brýt nýja hálfvitann minn í tvennt þegar kylfan fer í tréð fyrir framan mig (gleymdi alveg að hugsa um framsveifluna).
Eru golfmarkmiðin þín klár fyrir sumarið og verður leynivopn í pokanum?
Já þau eru klár, leynivopnið er jákvætt hugarfar og gott nesti.
Ertu með einhverjar sérstakar væntingar varðandi vellina sjálfa inn í golfsumarið?
Nei ég hef fulla trú á að vallarstarfsmenn okkar geri sitt besta til að hafa vellina fína.
Hvaða GKG mótum stefnirðu á að taka þátt í þetta sumarið og hvert þeirra er efst á forgangslistanum?
Ég hef ekki mikið spáð í það en Meistaramótið er alltaf á listanum, er skemmtilegasta og mest krefjandi mótið. Mér gekk svo vel í fyrra að ég er komin upp í 3.flokk núna, það væri gaman að taka þátt í þeim flokki.
Hvert er drauma GKG hollið þitt og hvaða utanfélagsmaður fengi að vera með í hollinu?
Ævar (maðurinn minn), Díana Ósk (dóttir mín) og utanfélagsmaðurinn væri Borgnesingurinn Bjarki Pétursson.
Notaðir þú golfhermana í vetur og ætlarðu að nota þá með útigolfinu í sumar?
Nei, er ekki dugleg að æfa mig.
Uppáhalds holan þín á Leirdalnum?
Fjórtánda. Er mjög skemmtileg, gaman að standa ofar og slá niður í byrjun.
Uppáhalds holan þín á Mýrinni?
Þriðja. Því það er allt opið en fullt af hættum.
Hver er uppáhaldsvöllurinn fyrir utan GKG?
Innanlands er það Brautarholtið vegna stórbrotinnar fegurðar. Erlendis er það Lo Romero á Spáni, fyrsti völlurinn sem ég spilaði á erlendis og svo er síðasta brautin svo ótrúlega flott, endar á greeni sem er eyja.
Texas Scramble eða Betri Bolta?
Úps, ég man aldrei hvort er hvað.
Hver er uppáhaldskylfan?
Í dag á ég enga uppáhalds held ég en ég gæti alveg spilað hring með 4, 8 og pútter.
Áttu þér fyrirmynd í golfinu?
Í raun er engin sérstök fyrirmynd, tek eftir misjöfnum hlutum hjá fólki og nýti mér það sem ég get. Annars er Ingibjörg Ólafsdóttur okkar GKG kona rosalega flott fyrirmynd fyrir okkur öll.
Hvernig nestar þú þig út á golfvöll?
Er oftast með banana, bláan powerade, vatn og brjóstsykur. En samt mjög misjafnt, fer pínu eftir stemmingunni.
Hvað er lang, lang best við GKG?
Kvennastarfið og félagarnir.