Hvað segir Gummi vallarstjóri inn í golfsumarið?
Guðmundur Árni Gunnarsson vallarstjóri GKG býr í Kópavogi en það vita það ekki allir að snillingurinn sá kemur frá Akureyri og verður alltaf Akureyringur inn við beinið þótt hann hafi nostrað meistaralega við GKG vellina með sínu flotta starfsfólki í nærri 20 ár. Gummi er að detta í 46 árin, er með 20 í forgjöf og nú styttist í að við förum að sjá hann nær daglega, oftar samt við að hugsa um börnin sín, Leirdalinn og Mýrina, en að sveifla uppáhalds kylfunni sinni. Takk fyrir okkur meistari Gummi!
Hvað dró þig að golfinu og hvenær?
Þegar ég var ungur drengur þá ólst ég upp nánast við hlið golfvallarins á Akureyri, mér fannst alltaf meira spennandi að fylgjast með viðhaldi vallarins heldur en íþróttinni sjálfri enda byrjaði ég ekki að spila golf fyrr en all nokkrum árum síðar.
Hvers vegna valdirðu GKG?
Þar sem ég er starfsmaður GKG en þannig var að árið 2001 ákvað þáverandi vallarstjóri að segja starfi sínu lausu og ég sóttist eftir því að komast til GKG þar sem mér þótti það spennandi kostur eftir að hafa verið vallarstjóri hjá GA.
Mýrin eða Leirdalur?
Þetta eru tveir ólíkir vellir sem mér þykir vænt um. Það er ekki hægt að gera upp á milli barna sinna.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lent í á golfferlinum?
Það er erfitt að kalla golfið mitt einhvern feril. Ég á oftast mjög skemmtilega hringi þar sem mér tekst vanalega að gera eitthvað sem á ekki að vera hægt eða í það minnsta erfitt er að gera með kylfu og kúlu.
En það vandræðalegasta?
Það er líklega þegar við vorum að opna Leirdalinn og ég var í fyrsta holli og staddur á 4. teig þar sem ég toppaði boltann og hann fór í teigmerki fyrir framan og kom til baka vel fyrir ofan okkur og endaði utan vallar fyrir aftan teigana.
Eru golfmarkmiðin þín klár fyrir sumarið?
Ég set mér alltaf eitt markmið á hverju vori og það er að spila meira en í fyrra, vanalega gengur það ekki upp þar sem megnið af mínum vökutíma er á vellinum í öðrum verkum en að spila golf.
Verður leynivopn í pokanum?
Engin leynivopn enda held ég að einhverjar súper kylfur séu ekkert að bjarga getu minni í þessu sporti.
Hér kemur spurningin sem þú færð alltaf á þessum tíma árs, hvernig koma vellirnir undan vetri?
Vellirnir eru graslega séð í fínu standi sýnist mér en það sem er helst að hrjá okkur er frost í jörðu og hvað frostið er búið að lyfta jarðveginum. Það sem okkur vantar nú er að það fari að hlýna og að aprílmánuður verði okkur hliðhollur veðurfarslega og þá ættum við að geta opnað með sóma í byrjun maí. Golf verður besta íþróttin til að stunda á þessum skrýtnu tímum sem við erum að upplifa þessar vikurnar en eðlilega verðum við að aðlaga okkur að smitvörnum og fleiri reglum sem gilda í samfélaginu okkar, en það verður ekkert mál við þurfum aðeins að hugsa út fyrir boxið þá kemur þetta.
Ertu með einhverjar sérstakar væntingar varðandi vellina sjálfa inn í golfsumarið?
Væntingar mínar til sumarsins eru að vellirnir verði í topp formi og að veðrið verði í liði með okkur líka.
Hvaða GKG mótum stefnirðu á að taka þátt í þetta sumarið?
Ég tek nánast þátt í öllum mótum sumarsins en á annan hátt en flestir aðrir. Meistarmót GKG er alltaf það stærsta sem við erum með á hverju ári. Það er vegna þess að þetta er stærsta mót félgsmanna okkar og það er svo mikil hátíðarstemming í kringum mótið og allir starfsmenn og sjálfboðaliðar leggja allt í þetta mót.
Hvert er drauma GKG hollið þitt og hvaða utanfélagsmaður fengi að vera með í hollinu?
Þetta er ekki flókið. Þetta væru þeir Siggi Hlö, Guðni popp og Silli saumó. Engin ástæða til að sækja einhver utanfélagsmann í hollið mitt.
Notaðir þú golfhermana í vetur?
Ég er bara búinn að fara einu sinni til að prófa Leirdalinn og fannst það mög gaman.
Uppáhalds holan þín á Leirdalnum?
Fyrsta holan. Þetta er að mínu mati ein sú fallegasta og mest krefjandi upphafshola á landinu.
Uppáhalds holan þín á Mýrinni?
Sjöunda holan. Gaman að reyna við að ná yfir vatnið í upphafshögginu og vonandi enda á brautinni.
Hver er uppáhaldsvöllurinn fyrir utan GKG?
Jaðarsvöllur. Það er bara allt svo gott fyrir norðan, völlurinn og veðrið.
Texas Scramble eða Betri Bolta?
Texas.
Hver er uppáhaldskylfan?
Driverinn því í þessi fáu skipti sem ég smell hitti hann þá er það svo ljúf tilfinning.
Áttu þér fyrirmynd í golfinu?
Ég myndi segja að Guðni Þorsteinn aðstoðar vallarstjóri sé mín fyrirmynd í golfinu enda er hann líka fyrrum klúbbmeistari GKG í 1. flokki.
Hvernig nestar þú þig út á golfvöll?
Það fer bara eftir því hvað vertinn hefur upp á að bjóða hverju sinni.
Hvað er lang, lang best við GKG?
Ég held að GKG hafi einhvern anda yfir sér sem eigi sér ekki hliðstæðu hér á landi. Það er alveg sama við hvaða meðlim þú talar, það eru allir boðnir og búnir við að aðstoða klúbbinn sinn eins og hægt er. Sjálboðaliðastarfið er einstakt hjá okkur sem er frábært og verður því fólki aldrei nægilega þakkað fyrir þeirra framlag.