Afrekskylfingar GKG virðast eiga það þrennt sameiginlegt að setja sér skýr markmið, æfa vel og vera miklir meistarar nestisins. Þannig að leynivopnið sem við hin tökum upp eftir þeim inn í golfsumarið framundan er MÆN, þ.e. skýr markmið, markvissar æfingar og gomma af góðu nesti! Að því sögðu kynnum við með gríðarlega miklu stolti stórkylfinginn Huldu Clöru Gestsdóttur, 18 ára Kópavogsbúa með -2,2 í forgjöf. Hulda Clara hefur þegar skipað sér á bekk með fremstu golfkonum landsins og er fastamaður í kvennalandsliðinu. Vegna Covid 19 mun Hulda Clara eingöngu spila heima í sumar og hún hlakkar mikið til að geta verið með í móti mótanna, Meistaramóti GKG, með vinkonum sínum og spilafélögum. Við GKG-ingar hlökkum líka til að sjá mikið til Huldu Clöru í sumar og óskum henni velfarnaðar í mótum sumarsins!
Hvað dró þig að golfinu og hvenær?
Ég fékk fyrsta golfsettið mitt í 3 ára afmælisgjöf. Ég var of hættuleg með það þannig að það var tekið af mér. Þegar ég var 6 ára sendi pabbi mig á golfnámskeið og síðar byrjaði ég að æfa. Í byrjun gerði pabbi golf skemmtilegt með því að fara með mig og systir mína í púttleiki uppá súkkulaði. Ég byrjaði síðan að hafa mikinn áhuga á golfi þegar forgjöfin fór að lækka.
Hvers vegna valdirðu GKG?
Í rauninni fékk ég ekki að velja, ég var sett í GKG þegar ég var lítil, en ég er mjög ánægð með að vera í klúbbnum. GKG er með besta barna/unglinga starfið.
Mýrin eða Leirdalur?
Leirdalur.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lent í á golfferlinum?
Það er að hafa verið fyrsti íslendingurinn til að vinna einstaklingskeppnina á EM golfklúbba. Einnig fannst mér mjög skemmtilegt þegar ég var valin í fyrsta landsliðsverkefnið mitt árið 2016, þar sem það var markmið mitt á þeim tíma.
En það vandræðalegasta?
Þegar ég var 12-13 ára að keppa á Meistaramótinu. Fyrir lokahringinn var ég með 11 högga forystu, á teig á fyrstu holu á Mýrinni sló ég 6 kúlum out of bounce hægra megin og þar með missti forrystuna og endaði í öðru sæti.
Eru golfmarkmiðin þín klár fyrir sumarið og má gefa upp hvaða leynivopn verður í pokanum?
Já markmiðin eru klár fyrir sumarið. Leynivopn, ég ætla að skipuleggja æfingar vel, nýta tímann og spila mikið.
Ertu með einhverjar sérstakar væntingar varðandi GKG-vellina inn í golfsumarið?
Já ég bý fyrir ofan golfvöllinn og völlurinn lítur vel út. Veturinn var langur þetta árið en sumarið getur samt sem áður verið mjög gott. Ég held að vellirnir verði í góðu standi.
Nærðu að taka þátt í eitthvað af GKG mótunum þetta sumarið og hvert þeirra er efst á forgangslistanum?
Já, ég hlakka ekkert smá til að keppa á meistaramótinu, ég hef ekki keppt á því síðustu 4 ár vegna keppnisferða erlendis.
Er önnur mótadagskrá sumarsins hjá þér að skýrast?
Já, ég ætlaði að keppa á fjórum mótum erlendis, en það hefur verið hætt við öll mótin vegna covid. Ég verð á Íslandi þetta sumarið. Ég mun taka þátt á mótaröð þeirra bestu, heimslistamótaröðinni og líklega eitthvað á unglingamótaröðinni.
Hvert er drauma hollið þitt?
Drauma hollið væri að spila með Evu, Önnu, Árný og Maríu. Mér finnst ekkert smá gaman að spila með stelpunum.
Notarðu golfhermana?
Já ég notaði hermanna mikið í vetur, ég nota þá á æfingum til að sjá t.d. boltaflug, kylfuhraða, og fleira.
Uppáhalds holan þín á Leirdalnum?
Uppáhalds holan mín á Leirdalnum er 14. holan því hún er stutt og það er oft góður möguleiki á að fá fugl.
Uppáhalds holan þín á Mýrinni?
5. hola er í uppáhaldi því mér finnst par 5 holur skemmtilegar, þær eru fuglaholur.
Hver er uppáhaldsvöllurinn fyrir utan GKG?
Uppáhalds völlurinn er Brautarholltsvöllur því hann er ekkert smá fallegur og skemmtilegur.
Texas Scramble eða Betri Bolta?
Texas Scramble.
Hver er uppáhaldskylfan?
54° er uppáhaldskylfan, það er hægt að búa til svo mörg högg með henni.
Áttu þér fyrirmynd í golfinu?
Já Annika Sörenstam og Tiger hefur líka alltaf verið í uppáhaldi.
Hvernig nestar þú þig út á golfvöll?
Ávextir, grænmeti, flatkökur, orkustykki, vatn, safi, hleðsla, grísk jógúrt, hnetur og samlokur eru dæmi um það sem mér finnst gott að hafa með mér í nesti, ég vil hafa það hollt og gott.
Hvað er lang, lang best við GKG?
Mér finnst mjög gott að vera í GKG, starfsfólkið er æðislegt og félagsmenn yndislegir. Svo eru líka bestu vinkonur mínar, sem ég hef kynnst í gegnum golfið, að æfa með mér sem mér finnst ekkert smá gaman!:)