Það er varla nokkuð meira viðeigandi nú þegar styttist í opnun GKG vallanna inn í sumarið en að heyra í einum af meisturunum sem standa að baki öllum þeim frábæru breytingum og andlitslyftingum sem Leirdalurinn hefur farið í gegnum síðustu misserin. Við kynnum því með miklu stolti Sigurð Kristinn Egilsson formann vallarnefndar sem segir okkur meðal annars hvað nýtt og spennandi er að fara að taka á móti okkur inn í þetta sumar. Sigurður Kristinn er 48 ára gamall Kópavogsbúi og hörku golfari með 7,6 í forgjöf. Svo er hann einn af „holu í höggi“ snillingum klúbbsins en spurning hvort hann sé tilbúinn í aðra svoleiðis þjóðhátíð á næstunni með öllu sem því fylgir ? Við gefum meistara Sigurði Kristni orðið.
Hvað dró þig að golfinu og hvenær?
Pabbi dróg mig í byrjun að golfinu, ætli ég hafi ekki verið 7 ára þegar ég mundaði fyrst kylfuna með honum.
Hvers vegna valdirðu GKG?
Fékk sumarvinnu 13 eða 14 ára hjá Golfvelli Garðabæjar, sem síðar varð GKG og vann á vellinum 6 sumur. Ekkert annað hefur komið til greina eftir það. Heimavöllur margra vina og félaga skiptir síðan öllu máli, og eini golfklúbburinn á Íslandi sem býður upp á heilsársgolf við frábærar aðstæður.
Hvernig var síðasta golfsumar hjá þér og hvort er Mýrin eða Leirdalur þinn völlur?
Síðasta sumar var rólegra en oft áður, spila ekki mikið í rigningu. Frábært að fara 9 holur seint á sumarkvöldi á Mýrinni, en spila Leirdalinn mun meira.
Vallarnefnd hefur staðið í framkvæmdum á Leirdalnum og á svæði GKG síðustu misseri sem hafa farið mjög vel í félagsmenn. Hafa þessar breytingarnar staðist væntingar vallarnefndar og hvaða verki er nefndin stoltust af til þessa?
Það er eiginlega fjöldi vel heppnaðra verkefna á síðustu árum sem stendur upp úr. Allt liður í því að gera völlinn snyrtilegri, hvort sem það eru nýjar tröppur, skilti, holtagrjót við teiga, kantsteinar, kílómetrar af drenlögnum, endurnýjun bönkera og margt fleira. Margar stórframkvæmdir standa jafnframt uppúr, eins og nú síðast vinstra megin við 10. flöt Leirdalsvöllur og teigstæði á 11. braut Leirdalsvallar, sléttun á 3. braut og 16. braut Leirdalsvallar. Stærsta púttflöt á landinu var síðan tekin í notkun á síðasta ári og mun nýtast vel barna- og unglingastarfi. Líklega hefur aldrei verið framkvæmt jafnmikið á vellinum og á síðustu árum, og Gummi vallarstjóri og félagar hafa staðið í ströngu á sumrin og ekki síst á veturnar.
Hvað hefur formaður vallarnefndar að segja okkur um framkvæmdir í kringum GKG vellina fyrir þetta sumar?
Það verður spennandi að spila á nýrri 18. flöt, framkvæmd sem margir hafa beðið eftir. Þennan vetur lögðum við mikla áherslu á að halda áfram að endurnýja bönkera, í heild erum við búnir að endurnýja yfir 16 bönkera á skömmum tíma. Við breyttum jafnframt stígnum frá 8. holu Leirdalsvallar m.a. til að létta álag af svæðinu í kringum flötina, og um leið lagfærðum við aðkomuna að 9. teig, sem og útaf keyrslu af stígnum við 9. flötið. Tókum jafnframt í gegn aðkomuna að 17. teig og munu félagsmenn sjá mikla breytingu þar. Allt eru þetta aðgerðir til að snyrta völlinn. Veturinn var hins vegar mjög kaldur og enn frost í jörðu, vorið kalt og þurrt þannig að við munum opna vellina seinna en áður.
Tekurðu þátt í Meistaramótum GKG og ef svo, hverjar eru væntingarna fyrir mótið í sumar og áttu einhver leynitrix fyrir okkur hin?
Já það er alltaf planið, þetta verður stórkostleg skemmtun eins og alltaf. Leynitrixið er að gera litlar væntingar um skor, enda bara skemmtun.
Einhver önnur plön og væntingar inn í golfsumarið framundan?
Spila meira en síðasta sumar.
Hver er uppáhaldskylfan og í hvaða aðstæðum notarðu hana helst?
Alltaf driverinn.
Hvert er drauma GKG hollið þitt og hvaða utanfélagsmaður fengi að vera með í hollinu?
Sérvaldir Total meðlimir og Will Ferrell.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lent í á golfferlinum?
Það hlýtur að vera Þjóðhátíðin á Leirsdalsvelli þegar ég fór holu í höggi sumarið 2019.
En það vandræðalegasta?
Dagurinn eftir Þjóðhátíðina á Leirdalsvelli og reikningurinn hjá Mulligan.
Hvert er uppáhalds leikformið þitt?
Holukeppni, maður á alltaf séns þó maður sprengi nokkrar holur.
Uppáhalds brautin þín á Leirdalnum?
Sextánda holan. Glæsilegt teigstæði og layout þar sem þú þarft að velja vel strategíu fyrir holuna. Umbunar vel fyrir að taka áhættu og refsar fyrir slæm högg.
Uppáhalds brautin þín á Mýrinni?
Sjöunda holan. Vatnahola sem býður upp á gott risk&reward.
Hver er uppáhaldsvöllurinn fyrir utan GKG?
Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum, magnað umhverfi og mikil sérstaða.
Notar þú golfhermana og ef svo, hver er upplifunin?
Já, einu sinni í viku allan veturinn, heimsklassa aðstaða fyrir félagsmenn.
Áttu þér fyrirmynd í golfinu?
Birgir Leifur er sá allra flottasti.
Uppáhaldsnestið í golfpokanum?
Birdie pelinn.
Hvað er lang, lang best við GKG?
Eini golfklúbburinn á Íslandi sem býður upp á fyrsta flokks heilsárs sumar- og vetraraðstöðu fyrir alla félagsmenn.