Hvað segir GKG-ingurinn Helga Sigríður Sigurgeirsdóttir?
Það er svo gaman að kynna gullmola GKG. Einn af okkar uppáhalds er Garðbæingurinn og Kópavogsbúinn Helga Sigríður Sigurgeirsdóttir sem hefur það mottó í forgrunni þegar kemur að golfinu að hafa gaman! Mottó sem reynir á okkur öll úti á velli og Helga stendur keik undir, sama hvað, eins og kemur í ljós þegar hún lýsir uppáhalds vandræðamómentinu sínu í golfinu. Annað mottó Helgu er að eiga alltaf snickers í golfpokanum en það er samt hálfgert vandræðamottó sem er í mikilli endurskoðun þessa dagana. Við gefum Valkyrjunni og gleðigjafanum Helgu Sigríði orðið.
Aldur og forgjöf?
Úff þessar tvær eru mjög erfiðar fyrir mig; 54 ára og með 29,9 í forgjöf.
Hvað dró þig að golfinu og hvenær?
Ég held að ég verði að kenna manninum mínum um það og það var ca. árið 2006.
Hvers vegna valdirðu GKG?
Verð líka að kenna mínum heitt elskaða um það ? En sé ekki eftir því né að hafa byrjað í golfi!
Mýrin eða Leirdalur?
Leirdalurinn.
Hvað stendur upp úr hjá þér eftir síðasta golfsumar?
Skemmtilegt golf með skemmtilegu fólki. Golfið var því miður ekki alveg nógu gott en þá er bara að reyna að gera betur næsta sumar. En númer eitt, tvö og þrjú að hafa gaman ?
Hvert er planið og leynivopnið fyrir golfsumarið framundan?
Jæja nú verð ég að gera alvöru úr þessu og fara að lækka mig í forgjöf! Leynivopnið er að tala við Soffíu Dóru vinkonu mína og fá sálfræðihjálp þar og svo kannski að æfa mig aðeins meira!! Kannski líka að taka mark á því hvað kennarinn minn er að segja mér ?
Hvert er drauma GKG hollið þitt og hvaða utanfélagsmaður fengi að vera með í hollinu?
Ég er reyndar alltaf að spila með draumahollunum. Hef bara alltaf mjög gaman þegar ég spila með Valkyrjunum mínum, öllum skemmtilegu GKG-ingunum og öðrum vinum. Ég held ég yrði bara stressuð ef ég færi að velja mér einhverja rosa golfara til að spila með í draumaholli og þá fer allt í klessu hehe. Þannig að draumahollið er bara þeir sem ég spila með hverju sinni. Mér finnst mjög gaman líka að spila með mömmu og pabba, krökkunum mínum, Úlfari mínum og tengdamömmu. Við spilum reyndar allt of sjaldan öll saman.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lent í á golfferlinum?
Skemmtilegasta humm. Hef því miður ekki farið holu í höggi ennþá!
En það vandræðalegasta?
Ég hef átt nokkur vandræðaleg móment í golfinu!! Kannski það eftirminnilegasta sé þegar ég var að spila út á Spáni á mjög skemmtilegum velli; La Gomera með, sem betur fer, eðal spilafélögum; manninum mínum, Ingibjörgu S. og Jóni Baldurs. Mér gekk eitthvað illa og var smá pirruð (sem gerist mjög sjaldan hehe), lenti fyrir utan í drivinu og boltinn fyrir aftan einhvern fjarlægðarhæl! Ég strunsaði að boltanum og ætlaði að fara að slá. Maðurinn minn ætlaði að stoppa mig af en ég var ekki alveg til í að hlusta á þessu augnabliki heldur þrusaði í boltann og hann fór í hælinn og svo aftur til baka í hausinn á mér og skaust þaðan til baka á góðan stað fyrir næsta högg á vellinum ? Ég fann svolítið til í hausnum en kláraði hringinn enda tímdi ég ekki að hætta á þessu flotta velli. Fékk ágætis glóðarauga sem ég var með næstu þrjár vikurnar. Sem betur fer þekkti ég spilafélaga mína vel og þau mig þannig að það vissu allir að það þýddi ekkert að fá mig til að hætta þrátt fyrir þetta vandræðalega atvik ? Ég sagði svo hinum nýkrýnda golfdómara og mikla snillingi Ingibjörgu Ólafs frá atvikinu eftir hringinn og það fyrsta sem hún spurði mig var hvort ég hefði ekki talið þetta inn sem víti!!!
Tekur þú þátt í GKG mótunum og ef svo er hvert er uppáhaldsmótið þitt?
Jájá ég tek þátt í mótum. Mitt mottó er samt bara að fara og spila golf og hafa gaman. Ég reyni alltaf að vera með í meistaramótinu, Það er uppáhalds mótið mitt. Einnig er ég í hópi með sjö frábærum konum úr GKG. Við köllum okkur Valkyrjur, enda bara Valkyrjur þar á ferð. Við stofnuðum þennan hóp fyrir tveimur árum til að vera með í Liðakeppni GKG, alveg frábærlega skemmtilega uppsett mót þar sem GKG-ingar keppa innan liða. Að sjálfsögðu hef ég líka tekið þátt í kvennamótunum sem eru alveg frábær og svo má ekki gleyma mánudagsmótaröðinni. Opnunarmót GKG og Bændaglíman eru líka fastur punktur í tilverunni. Eins og sést á þessu þá reyni ég bara alltaf að vera með ?
Hvert er uppáhalds leikformið þitt?
Punktakeppni. Þá þarf ég bara að reiða mig á sjálfan mig og taka afleiðingunum ?
Uppáhalds holan þín á Leirdalnum?
Níunda holan. Ég held mér hafi bara einhvern tímann gengið vel á henni og fest inni að hún sé mín uppáhalds!
Uppáhalds holan þín á Mýrinni?
Áttunda holan. Hún kemur mér alltaf mest á óvart.
Hver er uppáhaldsvöllurinn fyrir utan GKG?
Hér heima er það Urriðaholtsvöllur, mér finnst hann svo fallegur. Úti er það væntanlega Thracian Cliffs í Búlgaríu.
Hver er upplifun þín af golfhermunum?
Við stelpurnar í Valkyrjunum o.fl. eigum fasta tíma í golfhermunum á hálfsmánaða fresti yfir vetrartímann og þá er mjög mikið fjör. Mér finnst þetta alveg frábær framlenging á golftímabilinu og þá sérstaklega núna í ár þegar að maður sér ekki fram á að fara til útlanda í vor að spila golf.
Hver er uppáhaldskylfan og í hvaða aðstæðum notarðu hana helst?
Mér finnst alltaf skemmtilegast að nota driverinn.
Áttu þér fyrirmynd í golfinu?
Já manninn minn hann Úlfar Jónsson.
Hvernig nestar þú þig út á golfvöll?
Ég nesta mig allt of mikið yfirleitt. Þarf aðeins að fara að spá í að hafa það hollara, blessaða Snickersið ekki alveg að vinna með mér svona til lengri tíma litið ?
Hvað er lang, lang best við GKG?
Það eru GKG-ingarnir, það er svo frábær félagsandi í GKG. Alltaf gott að mæta í Mullagen og fá sér gott að borða og ræða málin við alla sem þar eru og svo það frábæra fólk sem er að taka á móti manni þar.