Í Seljahverfi Reykjavíkur býr 46 ára GKG-ingur með 19,3 í forgjöf sem gerði sér lítið fyrir og vann Holumeistarakeppni klúbbsins í sumar. Þessi golfsnillingur heitir Heiðrún Líndal Karlsdóttir og það sem gerir þetta enn skemmtilegra er að lokaglíman um holumeistaratitilinn var á milli hennar og eiginmanns hennar Jóns Arnars Jónssonar. Upphafið að golfinu hjá þeim hjónum rekjum við til síðustu aldamóta þegar fyrri vinnustaður Heiðrúnar bauð upp á golfkennslu sem þau skelltu sér á. Eftir það var einfaldlega ekki aftur snúið með kylfurnar og sem hefur heldur betur skilað sér í mikilli gleði og frábærum árangri hjá þessu skemmtilega pari. Heiðrún Líndal Karlsdóttir er GKG-ingur nóvembermánaðar og við óskum henni innilega til hamingju með Holumeistarakrýninguna um leið og við gefum henni orðið.
Hvers vegna valdirðu GKG og hvort er það Mýrin eða Leirdalur sem kallar meira á þig?
Ég byrjaði í golfklúbbnum Kili en þegar elsta barnið byrjaði í golfi þá færðum við okkur yfir til GKG og sjáum ekki eftir því. Leirdalur er minn völlur en bæði hann og Mýrin stóðu algerlega undir mínum væntingum síðasta golfsumar.
Hvað stendur upp úr hjá þér eftir sumarið?
Ætli það sé ekki hvað ég náði að spila marga golfhringi og ekki skemmdi það að komast í golfferð til Spánar í byrjun október.
Svo ertu hvorki meira né minna en Holumeistari GKG 2021 eftir lokaeinvígið við eiginmanninn Jón Arnar í ágúst. Hvernig var spennustigið á milli ykkar hjóna í þeirri glímu?
Við vorum reyndar bæði alveg sultuslök yfir þessu en þetta var mjög jafn leikur og ég vann hann á 17 holu.
Áttu þér fyrirmynd í golfinu og fengi einhver utanfélagsmaður að vera með í draumahollinu þínu?
Nei ég á enga sérstaka fyrirmynd í golfinu en Viktor Hovland kæmist í draumahollið mitt ásamt manninum mínum.
Fyrir áhugasama þá er meira hér um norska golfmeistarann Viktor Hovland
Viktor Hovland PGA TOUR Profile – News, Stats, and Videos
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lent í á golfferlinum?
Eitt sinn var ég mætt út á völl með eiginmanninum og þegar við vorum komin á 2. holu þá tek ég eftir hybrid kylfu í pokanum sem ég átti ekki og fékk algjört sjokk. Hélt að ég hefði stungið henni niður í pokann hjá mér því ég hafði fengið að prófa nákvæmlega eins kylfu hjá vinkonu en þá fékk eiginmaðurinn algjört hláturskast, hann hafði þá farið og keypt eins kylfu handa mér og laumað henni í pokann hjá mér.
En það vandræðalegasta?
Ég man ekki eftir neinu sérstöku en svarið fyrir ofan á alveg eins við hér ?
Tekur þú þátt í GKG mótunum og ef svo er hvert er uppáhaldsmótið þitt?
Mér finnst Hjóna- og paramótið og Bændaglíman standa upp úr í mótunum. Enda er Texas scramble uppáhalds leikformið mitt og mér finnst alltaf gaman að spila það form.
Hver eru bestu golfkaupin sem þú hefur gert í gegnum tíðna og hver er uppáhalds kylfan í pokanum?
Bestu kaupin eru nýja Taylormade settið mitt og SIM2 driverinn. Með uppáhalds kylfuna Þá er erfitt að gera á upp á milli 4 hybrid kylfunnar og sexu járnsins en ég nota þessar tvær fyrir annað höggið á par 5 brautum og á par fjórum.
Uppáhalds holurnar þínar á GKG völlunum og er einhver völlur utan klúbbsins í uppáhaldi?
Ég held ég verði að segja að 15. brautin á Leirdalum sé mín uppáhalds þótt hún sé ofarlega í forgjafarröðinni því mér gengur alltaf vel með hana. Á Mýrinni er það áttunda brautin og ég er enn að reyna að láta mig dreyma um að ná að slá yfir göngustíginn í upphafshögginu þar. Utan GKG er erfitt að velja einn völl en ætli það sé ekki Hvaleyrin eftir nýju breytinguna.
Hvað með golfhermana, notarðu þá og ef svo er, hver er upplifunin?
Já hef nýtt mér þá, aðstaðan er algjörlega til fyrirmyndar og gaman að geta valið um marga erlenda velli.
Uppáhaldsnestið í golfpokanum?
Það er hnetu – og súkkulaði blandan.
Að lokum, hvað er lang, lang best við GKG?
Það er allt flotta starfið sem er unnið hjá okkur, umhirðan og umgjörðin á vellinum og frábæra veitingaaðstaðan okkar.