Á morgun er þriðja Miðvikdudagsmót ársins, en fyrstu tvö mótin voru haldin þá 18. júní og 2. júlí síðastliðna. Mæting kylfinga hingað til hefur verið frábær og því hvetjum við alla til að mæta á morgun, enda spáir góðu veðri. Mótið telur að sjálfsögðu í heildarkeppninni, en bestu fjögur mót sumarsins (af þeim sjö sem eru í boði) punktalega séð telja hjá kylfingum. Því þarf ekki að örvænta þó einhver hafi ekki komist síðast, enn eru fimm mót í boði fyrir vonglaða kylfinga.

Fyrirkomulagið er kunnulegt, allir skrá sig á venjulegan rástíma á Leirdalsvöll hvenær sem er dagsins. Mæta í ProShop áður en hringur hefst, skrá sig og fá afhent skorkort gegn mótsgjaldi 1.000 krónur. Kylfingar spila síðan 18 holur með ritara og skila inn skorkorti að leik loknum. Frestur til að skila inn skorkorti rennur út á fimmtudagskvöldið. Fyrir þetta einstaka mót er hægt að vinna 3.000 króna boltakort fyrir annað sætið og 5.000 króna inneign í Proshop fyrir fyrsta sæti í hvorum flokki. Vinningshafar síðasta móts geta vitjað vinninga sinna í ProShop, en úrslit síðasta móts er að finna á heimasíðu mótsins á og með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Smellið hér til að sjá úrslit fyrstu tveggja mótanna og stöðuna eftir tvö mót.