Viðburðastjórinn okkar í GKG, hún Ingibjörg Þ. Ólafsdóttir gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 11. braut Leirdalsvallar í gær! Nokkrum dögum áður var hún hársbreidd frá holu í höggi á 4. brautinni þannig að þetta virðist hafa legið í loftinu.
Á facebook síðu Ingibjargar sagði hún: !Ég klikkaði á fuglinum í dag en fór holu í höggi á elleftu svo það er ok! Flottu spilafélagarnir sáu um fagnaðarópin en ég varð sjálf svo hissa og hrærð að það láku bara tár Toppnum náð en ég er samt ekki hætt í golfi!”
Þessu afreki var vel fagnað af Ingibjörgu og vinkonum hennar í hollinu, eins og vera ber.
Óskum Ingibjörgu innilega til hamingju með draumahöggið!