Okkar besta Ingibjörg Ólafsdóttir fékk heldur betur glaðning í ferðagjöf þegar hún var útnefnd sjálfboðaliði ársins á íþróttahátíð Kópavogsbæjar 8. janúar s.l. Ingibjörg, sem flutti búferlum til Noregs daginn eftir hátíðina, tók við þessari miklu viðurkenningu en hún var útnefnd af hálfu GKG og valin úr hópi tilnefninga.  Innilega til hamingju Ingibjörg!

Hér á eftir fylgir texti sem fylgdi útnefningunni:

Ingibjörg hefur verið einstakur drifkraftur í starfi GKG allt frá því að hún hóf að stunda golf árið 2014. Frá upphafi hefur hún boðið sig fram til hinna ýmsu verkefna, og er ávallt reiðubúin til aðstoðar eða að stýra stórum sem smáum verkefnum. Það er óhætt að segja að Ingibjörg sé afar gefandi og ósérhlýfin þegar kemur að sjálfboðaliðastarfi fyrir sinn klúbb og golfhreyfinguna, óteljandi klukkustundir bera þess merki.

Eftirfarandi verkefni, sem Ingibjörg á mestan heiður af, hafa skapað sér fastan sess í öflugu félagsstarfi GKG:

Liðakeppni GKG, sem stofnuð var 2019, er orðin gríðarlega vinsæl keppni þar sem 24 lið félagsmanna keppa sín á milli yfir sumarið. Mikil stemning er í kringum viðureignir liðanna og hefur Ingibjörg haldið utan um úrslit, hvatningu og fréttaflutning af mikilli festu.

Ingibjörg kom af stað „Ljósamótinu“ sem er eitt af haustmótunum í GKG. Keppendur eru ræstir út í ljósaskiptum og leika svo inn í myrkrið með upplýstum golfboltum á upplýstar flaggstangir, sem er mikið sjónarspil. Undanfarin ár hefur allur ágóði af mótinu runnið til æfingaferða barna/unglinga/afreksstarfsins.

Fréttaflutningur af félagsstarfinu og þeim einstaklingum sem eru í GKG skapar stemningu og jákvæðni. Ingibjörg hefur tekið viðtöl við hina ýmsu félagsmenn unga sem aldna, undir yfirskriftinni „Hvað segir GKG kylfingurinn?“ Þessi viðtöl eru birt mánaðarlega yfir vetrartímann.

Ingibjörg var stjórnarmaður í GKG frá 2017-2022 og sýndi hversu mikilvægt það er að vera virkur sjálfboðaliði sem drífur áfram þau verkefni og viðburði sem eru svo mikilvæg fyrir golfklúbb, s.s. félagsstarf og mótahald. Í almennu mótahaldi er hún alltaf reiðubúin að aðstoða við skorskráningu, ræsingu, eða önnur verkefni sem þarf að leysa.

Ingibjörg missti hægri handlegg fyrir neðan olnboga í vinnuslysi þegar hún var á unglingsaldri. Þrátt fyrir fötlun sína hefur hún ekki látið það aftra sér að stunda golf og að vera atorkusöm í hvers kyns afþreyingu og félagsstarfi. Hún stundar sitt golf af kappi allt árið um kring og er mikil fyrirmynd okkar allra sem jákvæður dugnaðarforkur.

Að okkar mati hefur Ingibjörg sýnt alla þá eiginleika og kosti sem vænst er af sjálfboðaliðum, og bæri hún titilinn Sjálfboðaliði ársins með miklum sóma.

Fyrir hönd stjórnar GKG,

Úlfar Jónsson
Þjónustustjóri GKG

Forsíðumynd: Sunna Guðmundsdóttir úr lýðheilsu- og íþróttanefnd Kópavogs ásamt Ingibjörgu.