Næstkomandi sunnudag, 22.03, verður þriðja púttmót vetrarins haldið í Kórnum.
Spilaðir verða tveir hringir frá kl. 12-15 og telur betra skorið.
Þáttökugjald er 500 kr og er öllum heimilt að taka þátt, sama í hvaða klúbb þeir eru, þannig að þetta er kjörið tækifæri til að draga fjölskyldumeðlimi eða vini með sér á púttmót.
Skemmtilega verðlaun í boði :
1. sæti – 5.000 kr gjafabréf í Golfbúðina
2. sæti – 3.000 kr boltakort hjá GKG
3. sæti – 1.000 kr boltakort hjá GKG