Það er orðið að góðri hefð í aðdraganda jóla að kveikja á jólaskapinu í hinu glæsilega jólahlaðborði GKG með honum Vigni vert í Mulligan
Jólahlaðborðið í ár verður þann 8. desember og hefst með fordrykk kl.19:00
Eins og áður verður matseðillinn í þessu vinsæla jólahlaðborði hinn glæsilegasti, þar sem borðin munu bókstaflega svigna undan kræsingum
GKG-ingurinn Magnús Már Harðarson gleður gesti með ljúfum píanótónum í byrjun kvölds og síðan mun píanósnillingurinn ungi úr Garðabæ, hann Magnús Stephensen leika listir sínar
GKG-ingar, hér er gott tækifæri í aðventunni til að bjóða vinum, vandamönnum og vinnufélögum að upplifa okkar margrómuðu GKG-stemningu
Borðapantanir í síma 824 2026 eða í tölvupósti á vignir@gkg.is