Nettó-mótið fer fram á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs – og Garðabæjar dagana 11.-13. júní. Mótið er annað mót tímabilsins á Unglingamótaröð GSÍ.

Alls eru 129 keppendur skráðir til leiks og er keppt í fjórum aldursflokkum hjá báðum kynjum.

Tveir elstu keppnishóparnir leika alls 54 holur á þremur keppnisdögum eða 18 holur á dag, en tveir yngstu keppnishóparnir leika 36 holur á tveimur keppnisdögum eða 18 holur á dag.

Jón Gunnarsson, afrekskylfingur í GKG, leiðir eftir fyrsta hringinn í elsta flokknum 19-21 árs, en hann kom inn á þremur undir pari, 68 höggum. Annar GKG-ingur, Óliver Máni Scheving, leiðir 17-18 ára piltaflokkinn á 72 höggum sem er hans besta skor á vellinum.

Eins og áður segir er þetta annað mótið á tímabilinu en alls eru mótin fimm á mótaröðinni.