Einn af okkar fremstu afrekskylfingum í GKG, Jón Gunnarsson, hóf keppni í dag á Tulip Challenge mótinu á Drentsche Golf & Country Club í Hollandi, en mótið er hluti af Global Junior Golf mótaröðinni og telur mótið á heimslista áhugakylfinga.

Keppni hófst í dag verða leiknir þrír hringir á jafnmörgum dögum. Ásamt Jóni keppa fimm aðrir piltar frá Íslandi, þeir Aron Emil Gunnarsson GOS, Tómas Hjaltested GR, Ingi Þór Ólafsson GM, Logi Sigurðsson GS og Björn Viktor Viktorsson GL.

Við óskum strákunum góðs gengis en hægt er að fylgjast með gengi þeirra hér.