Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 20 ára afmælis GKG. Bikarinn var afhentur GKG á þessum tímamótum klúbbsins í mars 2014 og er hann afhentur þeim unga kylfingi sem sýnt hefur góða frammistöðu utan vallar sem innan, og verið öðrum kylfingum til fyrirmyndar hvað varðar dugnað og háttvísi.

Bikarinn var veittur í fyrsta sinn á aðalfundi GKG 2014, og hlaut þá Aron Snær Júlíusson þessa viðurkenningu. Hér er hægt að skoða lista yfir þau ungmenni sem hafa hlutið þessa sæmdarviðurkenningu

Í ár hlýtur Jón Þór Jóhannsson Háttvísibikarinn:

Jón Þór hefur sýnt góða ástundun og metnað til að bæta sitt golf, og er nú kominn með 2,6 í forgjöf. Hann var í sigursveit GKG U18 pilta sem sigraði í Ísl.móti golfklúbba í sumar.

Hann hefur margoft sýnt að hann er frábær liðsmaður og félagi, öflugur leiðtogi og góð fyrirmynd.

Innilega til hamingju Jón Þór!