Kæri kylfingur.
Trackman útiæfingasvæðið er nú opið og bíður eftir að taka á móti þér.
Hér koma leiðbeiningar, við hvetjum þig til að skoða þetta og fara svo að æfa og njóta.
- Hvernig á að byrja, þarf að kveikja á einhverju? Nei, hermirinn og ipad eru tilbúin, byrjaðu að slá.
- Þú getur tengt þitt snjalltæki (aðeins Apple vörur) við herminn og haft upplýsingarnar beint fyrir framan þig.
- Get ég skoðað myndband af sveiflunni? Já. Að skoða myndband af sveiflunni er einn af valmöguleikunum sem hægt er að velja úr.
- Hvaða tölum á ég að fylgjast fyrst og fremst með? Það borgar sig ekki að hafa of margar upplýsingar á skjánum í einu, það getur verið ruglandi. Einbeittu þér að eftirfarandi, allavega til að byrja með:
- Kylfuferill (Club path): Þetta er ferillinn, eða sú leið sem kylfan er á, þegar boltinn er hittur. Mínus tala þýðir að ferillinn er “út-inn” (þ.e. kylfan er á leið til vinstri þegar boltinn er hittur). Plús tala þýðir að ferillinn er “inn-út” (þ.e. kylfan er á leið til hægri þegar boltinn er hittur). Ágætt viðmið er -3° til +3°
- Aðfallshorn kylfu í niðursveiflu (Attack angle). Þetta er hversu bratt eða flatt kylfan kemur niður að boltanum. Með járnum viljum við slá niður að boltann. Ágætt viðmið fyrir 7 járn er -3° til -6°.
- Fyrir dræver þar sem boltinn er upptíaður, þá viljum við að kylfan sé á leiðinni upp þegar boltinn er hittur. Ágætt viðmið er 0° til +3° Sjá fróðleiksmyndband hér.
- Staða kylfuhauss miðað við kylfuferil (Face to path): Staða kylfuhaussins þegar boltinn er hittur ræður mestu um upphafsstefnu höggsins. Hversu opin eða lokuð kylfan ætti að vera ræðst að miklu leyti hvernig kylfuferillinn er. Ef ferillinn er t.d. -4° (út-inn), þá þyrfti kylfuhausinn að vera opinn um 2°, þá ætti hann að enda nálægt miðjunni. Sjá fróðleiksmyndband um þetta atriði hér.
- Högglengd í flugi (Carry). Sýnir hversu langt boltinn flýgur. Hermirinn reiknar flugið útfrá gefnum forsendum, sem eru tegund æfingaboltanna, 15°hita, jafnsléttu og logi.
- Högglengd með rúlli (Total). Fluglengd auk rúlls. Rúllið er reiknað útfrá hraða og spuna boltans, mýkt meðalbrautar á PGA mótaröðinni, auk aðfallshorns sem hann svífur niður á jörðina.
Hér má finna miklan fróðleik á heimsíðu Trackman University.
Starfsmenn æfingasvæðisins eru oftast nærtækir og eru fúsir til að leiðbeina fólki við notkun hermana.
Opnunartímar (opnar fyrr þegar mót eru)
- Virka daga: 10-21
- Helgar: 10-17
Á ofangreindum tímum eru ipad skjáir til staðar. Boltavélin er hinsvegar alltaf opin og geta kylfingar komið og tekið fötu hvenær sem er. Til að tengjast Trackman hermunum, þá er hægt að gera það með eigin iphone eða ipad (aðeins IOS stýrikerfi). Náðu í Trackman Golf appið í App store. Opnaðu appið og skráðu upplýsingar þínar. Farðu í Settings/WiFi og tengdu þig við herminn sem er við þinn bás.
Verðskrá:
Aðeins er greitt fyrir boltana. Notkun Trackman hermana er innifalin í verðinu.
- Boltakort Verð Fullt verð
- Ein fata 600,- (Fullt verð 600)
- 6 fötur 3.000,- (Fullt verð 3.600,-)
- 9 fötur 4.200,- (fullt verð 5.400,-)
- 16 fötur 7.200,- (Fullt verð 9.600,-)
- 23 fötur 9.600,- (Fullt verð 13.800,-)
Básarnir undir skýlinu eru eingöngu fyrir rétthenta kylfinga. Allir básar sem eru fyrir utan skýlið geta bæði örvhentir og rétthentir kylfingar nýtt sér. Örvhentir kylfingar hafa því forgang í þau þegar það eru lausir básar undir skýlinu. Við höfum skipt út næstum öllum mottum og eru þær mjúkar og góðar að slá af.
Ath. að það er stranglega bannað að tína sér æfingabolta innan úr netbúrinu. Þeir aðilar sem verða uppvísir að því verður umsvifalaust vísað af æfingasvæðinu.
Vegna Covid reglna þá þarft að hafa eftirfarandi í huga:
• Æfingaboltar eru sprautaðir með sótthreinsandi efni og svo settir í boltavélina sem hreinsar enn frekar. Fötur fara í kar með sápulegi.
• Sótthreinsandi efni er á staðnum og mikilvægt er að notandi hreinsi ipad skjáinn fyrir/eftir notkun.
• Munið að halda tveggja metra bili á öllum stundum.
• Sprittið hendur fyrir og eftir notkun. Sprittbrúsar eru á svæðinu.
Helsti kostur við Trackman hermana er sá að notendur fá endurgjöf eftir hvert högg. Við mælum með að leita til PGA kennara sem gefur góð ráð og aðstoðar við að einblína á það sem er mikilvægast til að bæta sveifluna.
Gangi þér vel og njóttu þess að æfa vel og skipulega.
Með bestu kveðjum,
Starfsfólk GKG