Konur í GKG

Kvennagolf í Kórnum hefst þriðjudaginn 16. febrúar nk. og verður annað hvert þriðjudagskvöld milli kl. 20:00 og 22:00.  Takið frá eftirfarandi þriðjudagskvöld: 16. febrúar, 2. mars, 16. mars, 30. mars, 13. apríl og 27. apríl 2010.

 

Púttmótaröð verður þessi kvöld.  Fyrirkomulag mótsins er með þeim hætti að þrjú bestu kvöldin gilda, þ.e. besta skor, (hámark þrír hringir), viðkomandi kvölds skal skráð í stílabók sem verður á staðnum.

 

Við hvetjum allar konur í GKG til að mæta og æfa sveifluna fyrir sumarið og auk þess að taka þátt í púttmótaröðinni.

 

Kvennanefnd GKG