Kvennanefnd 2015 skipa:

Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður565 6529 / 691 0633bergthorasig@internet.is / bergthora@syslumenn.is
Sesselja Magnea Matthíasdóttir, varaformaður848 7171sesselja@syslumenn.is
Bryndís Hinriksdóttir695 0268binna@torg.is
Sóley Stefánsdóttir 616 1419gumodd@gmail.com
Hildur Pálmadóttir894 1424hildur.palma@simnet.is
Linda B. Pétursdóttir861 2939linda.bjorg.petursdottir@reykjavik.is
Bjarney Kr. Hlöðversdóttir617 8997kor@skolar.is
[separator top=”40″]

Ný kvennanefnd hefur tekið til starfa og er skipuð framangreindum konum. Starf kvennanefndar sumarið 2015 verður með nokkuð hefðbundnum hætti. Kvennanefndin verður með fasta golftíma alla þriðjudaga frá 19. maí til 1. sept., rástímar eru frá kl. 17:00 – 18:50. Í sumar munum við almennt leika 9 holur á þriðjudögum og leikum því í Mýrinni. Þær konur sem óska að spila saman 18 holur á Leirdalnum 2. og 4. þriðjudag í hverjum mánuði þurfa að skrá sig tímanlega. Í mótum leikum við 18 holur og spilum Leirdalinn að undanskildum mótunum 26. maí, 2. júní, 28. júlí og 25. ágúst 2015. Konur skrá sig í þriðjudagstímana með því að senda tölvupóst á gkg@gkg.is eða hringja í skálann til að skrá sig, s: 897-7773 og 565-7373. Gæta verður að því að skrá kt., grunnforgjöf og vallarforgjöf. Hægt verður að skrá sig á miðvikudegi eftir hádegi til hádegis á leikdag (þriðjudag). Fjórar konur verða saman í holli og tvær skulu vera með grunnforgjöf að 28 og tvær yfir 28. Eins og áður er kvennanefndin með þessu að leitast við að samræma þrjú sjónarmið, þ.e. að konur ráði að einhverju marki með hverri þær spili, reynsla þeirra sem lengra eru komnar skili sér til þeirra sem eru styttra komnar og þá er einnig haft í huga mikilvægi þess að leikhraði okkar verði til fyrirmyndar.

 

Greitt er fyrir þátttöku í mótum á Vífilsstaðavellinum til m.a. að standa undir kostnaði við verðlaun fyrir árangur og verður gjaldið kr. 1.500 og mótsgjald á mótinu 27. maí verður kr. 1.000. Þá greiða GKGkonur ekki mótsgjald á Leirdalnum í vinkvennamóti GKG- og GOkvenna. Við þurfum að greiða kr. 3.500 vallargjald á Urriðavelli þegar við förum þangað og þær greiða kr. 3.500 þegar að þær spila hjá okkur. Í vinkvennamóti GKG- og Nkkvenna greiða GKGkonur ekki mótsgjald í Mýrinni en NKkonur greiða kr. 2.000 og GKGkonur greiða kr. 2.000 þegar leikið verður á Nesvellinum. Þátttökugjald fyrir GKGkonur í mótum í Mýrinni og á Leirdalnum verður unnt að greiða í gegnum heimabanka inn á reikning kvennanefndar eða með peningum og verður það tilkynnt nánar fyrir hvert mót. Verðlaun á hatta- og kjólamótinu verða eins og venjulega þannig að hver kona kemur með lítinn pakka að verðmæti um kr. 1.000 -1.500.

 

Móta- og skemmtidagskrá kvennanefndar sumarið 2015:

 

Miðvikudaginn 13. maí                     Rauðvínskvöldið

            Þriðjudaginn 19. maí                         Fyrsti golfleikdagur  

            Þriðjudaginn 26. maí                        9 holu þriðjudagsmót, Mýrin

            Þriðjudagurinn 2. júní                      9 holu vinkvennamót NK og GKG, Nesvöllur

            Þriðjudagurinn 9. júní                      Vinkvennamót GKG og GO, Leirdalur

            Fimmtudaginn 18. júní                     Vinkvennamót GO og GKG, Urriðavöllur

            Þriðjudaginn 14. júlí                         18 holu þriðjudagsmót, Leirdalur   

            Þriðjudagurinn 28. júlí                     9 holu vinkvennamót GKG og NK, Mýrin

            Þriðjudaginn 11.ágúst                       Óvissuferð

            Þriðjudaginn 25. ágúst                     Hatta- og kjólamót, Mýrin

            Sunnudaginn 6. september             Lokamót kvennanefndar, Leirdalur


Fastir golftímar kvenna alla þriðjudaga kl. 17:00-18:50.

Í mótslok fyrirhugaðra móta verður verðlaunaafhending í skála. Lokamót verður sunnudaginn 6. september og verða þá afhent afreksverðlaun til þeirrar konu sem náð hefur flestum punktum yfir sumarið samkvæmt innlögðum skorkortum í skipulögðum leiktíma kvennanefndar og framangreindum mótum. Til grundvallar eru lögð fimm bestu skorkortin á 9 holum. Munið að skila inn skorkortum í sérmerktan kassa kvennanefndar með nafni, kt. og grunnforgjöf.

Við munum leitast við að koma fréttum úr starfinu á heimasíðu GKG og myndum á myndasíðu klúbbsins og á fésbókarsíðu kvennanefndar GKG. Þuríður Valdimarsdóttir sér um fésbókarsíðuna.

Við hefjum tímabilið með hinu árlega “Rauðvínskvöldi” kvennanefndar og verður það eins og að framan greinir miðvikudaginn 13. maí nk. í golfskálanum.

Kvennanefnd áskilur sér rétt til breytinga á ofanrituðu skipulagi ef nauðsyn krefur.

 

Með golfkveðju

Garðabæ 1. apríl 2015

f.h. kvennanefndar

Bergþóra Sigmundsdóttir

Sesselja Magnea Matthíasdóttir