Á morgun þriðjudaginn 7 júlí, verða malbikunarframkvæmdir á Vifilstaðavegi. Verktakinn sem sér um framkvæmdina hefur lofað að reyna að halda opnum möguleika að komast inn á svæði GKG. Samkvæmt okkar upplýsingum þá kemur þessi framkvæmd til með að standa stutt yfir. Við viljum biðja félaga um að taka tillit til þessara framkvæmda og mæta tímanlega á teig þar sem að einhverjar tafir kunna að verða.
Við vonum að þetta valdi sem minnstum óþægindum.