Við höldum áfram föstudagshádegisbragðlaukaævintýri GKG

Sumir halda því fram að lundirnar séu besta kjötið af lambinu meðan aðrir halda því fram að það sé lærið, enn aðrir hryggurinn  en flestir ef ekki allir eru sammála því að hægeldaðir lambaskankar ala Viggi toppa flest ef ekki allt.

Nú höldum við GKG-ingar áfram að bjóða vinum, vandamönnum og/eða vinnufélögum í föstudagshádegi GKG þann 8, maí næskomandi, hámark 50 í sal og við gætum vel að tveggja metra lýðrými og erum víðisfjarri hvort öðru.

Viggi býður uppá:

  • Hægeldaða gljáða lambaskanka
  • með flauelsmjúku kartöflumauki
  • ofnbökuðu grrænmeti – rauðvínsgljáa og bernaise sósu
  • Ásamt tilheyrandi meðlæti

Verð kr. 2.500,-

Ath,. panta þarf borð fyrirfram og verður etið í tveimur hollum, og er borðapöntun skilyrði fyrir skankaáti. Hægt er að panta borð kl. 11:30 eða 12:30. Vinsamlegast sendið borðapantanir vignir@gkg.is.

Með GKG kveðjum,

Lambaskankanefnd GKG