GSÍ hefur innleitt nýtt tölvukerfi sem heldur utan um rástímaskráningu, mótaskráningu, forgjöf kylfinga ofl. Kerfið kallast GolfBox og hér fyrir neðan eru leiðbeiningar fyrir þau sem eiga eftir að skrá sig þar inn.
Hvernig stofna ég aðgang inn á GolfBox?
- Ferð inn á www.golf.is.
- Smellir á Nýskráning efst í hægra horninu.
- Þá opnast vefsíða GolfBox
- Slærð inn kennitölu í efra boxið og eftirnafn þitt eins og það er skrifað með íslenskum stöfum í neðra boxið.
- Smellir á Leita.
- Ef þú ert skráð(ur) sem virk(ur) félagi í golfklúbbi í kerfinu ertu látin(n) staðfesta að þetta sért þú og flyst þá yfir á Forsíðuna þína í GolfBox.
- Ef upplýsingar um þig birtast ekki við leit hefurðu samband við klúbbinn þinn.
- Athugið að einungis félagsmenn sem hafa gengið frá sínum málum hafa aðgang að Golfbox.
Hvernig breyti ég notandanafni, lykilorði og netfangi?
Þú ferð í Forsíðan mín ofarlega vinstra megin á síðunni.
- Smellir á Breyta prófílnum.
- Neðarlega á síðunni smellir á Breyta notandanafni og aðgangsorði >.
- Slærð inn nýtt notandanafn og lykilorð.
- Slærð inn farsímanúmer og netfang.
- Smellir á Uppfæra >.
Smelltu hér til að skoða hjálparmyndband við nýskráningu https://youtu.be/sjwTsNUMFVo