Lokamót Miðvikudagsmótaraðar GKG fer fram miðvikudaginn 5.september. Keppnin er hörkuspennandi og eiga margir enn mögleika á að enda í einu af fimm efstu sætunum í hvorum flokki fyrir sig. Bestu fjögur mót manna punktalega séð telja til úrslita og hljóta fimm efstu í hvorum flokki glæsilega YES púttera frá golfdeild Arnarins að launum.

 

Mótið fer fram eins og í sumar. Menn skrá sig á rástíma á Leirdalsvöllinn, mæta og skrá sig á skrifstofu eða í veitingasölu – greiða mótsgjald 1.500 krónur og skila inn korti að leik loknum. Hafa menn frest til klukkan 22:00 á fimmtudaginn til þess að skila inn. Eins og alltaf eru verðlaun í boði fyrir hvert mót, en þau sem fá flesta punkta í hvorum flokki fyrir sig á morgun fá 10.000 króna inneign í Golfbúðinni Hafnarfirði að launum.

 

Smellið hér til að skoða úrslit síðasta móts og heildarstöðuna fyrir lokamótið