Lokamót GKG kvenna verður laugardaginn 12. september nk. og hefst kl. 09:30 og lokaskráning er kl. 12:30. Leiknar verða 18 holur á Leirdalnum. Leikfyrirkomulagið verður punktakeppni með fullri forgjöf.

Skráning fer fram á golf.is og hefst föstudaginn 4. september 2009 og lýkur föstudaginn 11. september nk. kl. 12:00. 

Í mótslok verður lokahóf GKG kvenna og hefst matur kl. 18:30. Gert er ráð fyrir að þær konur sem taka þátt í lokamótinu komist heim til að skipta um föt fyrir lokahófið. Óskað er eftir skemmtiatriðum og æskilegt er að skemmtikraftar láti stjórnarkonur vita fyrir lokahófið.  Lokahófið er fyrir allar konur í GKG.

Mótsgjald er kr. 2.400 og innifalið er mótsgjald og kvöldverður.  Greitt er í veitingasölunni í golfskálanum við upphaf móts.  Sama gjald er fyrir allar konur óháð því hvort að þær taki þátt í mótinu eða eingöngu kvöldverðinum.   Þær konur sem eingöngu taka þátt í lokahófinu skulu skrá sig á sérlista í golfskálanum og greiða í veitingasölunni í golfskálanum við komu í lokahófið.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í punktakeppni, næst holu á fjórum par 3 holum, 2. holu, 11. holu, 13. holu og 17. holu og verður boltinn að vera á flöt og lengsta brautarhögg á braut á 3. braut og verður boltinn að vera á braut. Einnig verða veitt verðlaun til þeirrar konu sem hefur fengið flesta punkta á 5 bestu 9 holum hennar í kvennagolfinu í sumar. 

Konur í GKG fjölmennum laugardaginn 12. september nk. í kvöldverðinn og/eða mótið og skemmtum okkur saman.

 

Golfkveðjur kvennanefndin