Lokamót GKGkvenna verður sunnudaginn 11. september nk. og hefst kl. 09:30 og lokaskráning er kl. 11:30. Leiknar verða 18 holur á Leirdalnum.
Leikfyrirkomulagið verður punktakeppni með hámark 40 í leikforgjöf, þ.e. vallarforgjöf.

Skráning fer fram á golf.is og lýkur laugardaginn 10. september nk. kl. 16:00. 

Í mótslok verður lokahóf GKGkvenna og hefst matur kl. 18:30. Gert er ráð fyrir að þær konur sem taka þátt í lokamótinu komist heim til að skipta
um föt fyrir lokahófið. Óskað er eftir skemmtiatriðum og æskilegt er að skemmtikraftar láti stjórnarkonur vita fyrir lokahófið.  Lokahófið er fyrir allar konur í GKG.

Mótsgjald er kr. 2.000 og innifalið er mótsgjald og kvöldverður. Greitt er í veitingasölunni í golfskálanum við upphaf móts. Sama gjald er fyrir allar
konur óháð því hvort að þær taki þátt eingöngu þátt í mótinu eða kvöldverðinum eða hvoru tveggja. Þær konur sem eingöngu taka þátt í lokahófinu
skulu skrá sig á sérlista í golfskálanum og greiða í veitingasölunni í golfskálanum við komu í lokahófið.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í punktakeppni, næst holu á fjórum par 3 holum, 2. holu, 11. holu, 13. holu og 17. holu og verður boltinn
að vera á flöt og lengsta brautarhögg á braut á 1. braut og verður boltinn að vera á braut. Einnig verða veitt verðlaun til þeirrar konu sem hefur fengið
flesta punkta á 5 bestu 9 holum í kvennagolfinu í sumar. 

Konur í GKG fjölmennum sunnudaginn 11. september nk. í kvöldverðinn og/eða mótið og skemmtum okkur saman.

 

Golfkveðjur kvennanefndin