Sigmundur Einar Másson og María Málfríður Guðnadóttir urðu klúbbmeistarar GKG í karla og kvennaflokki á nýliðnu meistaramóti og var Sigmundur að tryggja sér titilinn fjórða árið í röð. Sigrarnir hjá þeim báðum voru mjög öruggir, en Sigmundur sigraði með 9 högga mun og María með 13 höggum. Frábær árangur hjá þeim. Öll úrlsit mótsins er að finna á síðu mótsins á www.golf.is , undir mótaskrá.
Meistaramótið fór annars vel fram í ár og var þátttakan sú næst besta frá upphafi. Veðrið lék við kylfinga framan af móti en veðurguðirnir sýndu þó klærnar undir lok vikunnar. Mótanefnd og starfsfólk GKG þakkar fyrir sig og vonast til að sjá miklu fleiri að ári.