Miðvikudagsmótaröð GKG 2009 lauk nú fyrir stuttu og eru úrslit ljós. Efstu fimm kylfingar í flokki kvenna og karla hljóta glæsileg verðlaun fyrir árangur sumarsins. Verðlaunin verða afhend á lokahófi GKG, Bændaglímunni, eftir rúma viku og því mikilvægt fyrir vinningshafa að skrá sig í Bændaglímuna! sem fram fer 26. september næstkomandi.
Einnig hvetjum við alla sigurvegara einstaka móta og þá sem urðu í öðru sæti að vitja vinninga sinna í ProShop áður en tímabilið er úti. Annars þá þakkar GKG kylfingum fyrir þátttökuna og hlakkar til að sjá alla að ári.