Fjórða mót ársins á miðvikudagsmótaröðinni fer fram á morgun 12. ágúst. Miðvikudagsmótaröðin verður spiluð einu sinni í viðbót í sumar þann 26. ágúst.

Fyrirkomulagið er það sama og áður. Kylfingar skrá sig venjulega á rástíma, koma inn í golfverslun og greiða þar mótsgjald 1.500 krónur og fá útprentað skorkort til að skrá inn skorið sem á að skila inn eftir hringinn. Kylfingar hafa möguleika á því að skila inn skorkortinu til kl 22 á fimmtudaginn eftir mótið.  Leikin er punktakeppni í karla og kvennaflokki og gilda 4 bestu hringirnir af 6 í sumar. Eins og áður verða glæsileg verðlaun fyrir heildapunktakeppnina eins sem að veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í einstökum mótum. 

Verðlaun fyrir bestu punktafjölda í fyrstu tveimur mótum ársins.

1.       Sæti   5000 kr. gjafabréf í Golfverslun GKG

2.       Sæti   GKG Polo bolur

3.       Sæti   2000 kr. boltakort

Miðvikudagsmótaröðin (4)

1.       Sæti  Steinar J. Lúðvíksson                   40 punktar

2.       Sæti  Arnór Sigurður Árnason               39 punktur

3.       Sæti Sigurjón Gunnarsson                     37 punktar

Þessir einstaklingar geta nálgast verðlaunin sín í golfverslun GKG

Staðan eftir þrjú mót er hægt að nálgast hér.