Miðvikudagsmótaröð GKG 2008 lauk nú fyrir stuttu og eru úrslit ljós. Efstu fimm kylfingar í flokki kvenna og karla hljóta glæsileg verðlaun fyrir árangur sumarsins, en meðal verðlauna eru Yes Pútterar, Titleist burðarpokar og fleiri golfvörur. Verðlaunin verða afhend á lokahófi GKG, Bændaglímunni, eftir rúma viku og því mikilvægt fyrir vinningshafa að skrá sig í Bændaglímuna! Hún verður auglýst betur í næstu viku.

 

Smellið á hlekkina hér að neðan til að sjá lokastöðuna og úrslit 7. mótsins.

 

Einnig hvetjum við alla sigurvegara einstaka móta og þá sem urðu í öðru sæti að vitja vinninga sinna í ProShop áður en tímabilið er úti. Annars þá þakkar GKG kylfingum fyrir þátttökuna og hlakkar til að sjá alla að ári.

 

Úrslit 7. móts

Lokastaðan í mótaröðinni