Síðastliðinn miðvikudag lauk Miðvikudagsmótaröð GKG, en hún hefur staðið í allt sumar. Þáttakan í ár var ágæt, svipuð og undanfarin ár og var keppnin mjög spennandi undir lokin. Sjö mót voru haldin, en bestu fjögur mótin punktalega séð töldu til úrslita. Fimm efstu eftir sumarið í karla og kvennaflokki hljóta glæsileg verðlaun, YES púttera frá Golfdeild Arnarins. Verða verðlaunin afhent á lokahófi GKG, Bændaglímu, í haust.
Smellið hér til að skoða úrslit síðasta móts og lokastöðuna.
Klúbburinn þakkar öllum kylfingum fyrir þáttökuna og óskar sigurvegurum til hamingju. Sjáumst á næsta ári.