Nú eru komnar nýjar myndir frá árinu 2006 í myndasafnið hér á gkg.is. Kennir þar ýmissa grasa og eflaust gaman fyrir félaga að skoða gamlar myndir. Hægt er að nálgast myndasafnið okkar í hlekkjalistanum hér til vinstri eða með því að smella hér. Ef einhverjir luma á gömlum eða nýjum myndum er hægt að hafa samband við fannar@gkg.is  og deila þeim með félagsmönnum.

 

Einnig má geta þess að nú er unnið að uppfærslu gkg.is fyrir sumarið. Er verið að gera stjórnun vefsins þægilegri og um leið gefa honum létta andlitslyftingu, en núverandi útlit er tveggja ára gamalt. Hvetjum við því félagsmenn til að fylgjast með framvindu mála hér á heimasíðunni okkar.