Vegna dræmrar þátttöku hefur verið ákveðið að fella niður nýliðanámskeiðið sem fara átti fram í þessari viku. Reglunámskeiðið sem átti að vera hluti af námskeiðinu auk þess að vera öllum opið og halda átti í kvöld fellur því niður af þessum sökum.

 

Í staðinn verður reglufundur haldinn í golfskálanum á miðvikudaginn í næstu viku, þann 27. ágúst næstkomandi og er hann opinn öllum áhugasömum félagsmönnum. Kjartan Bjarnason, landsdómari klúbbsins, mun fara yfir helstu reglur sem vefjast fyrir kylfingum og svara spurningum. Allir velkomnir! Fundurinn hefst klukkan 20:00.