Niðjamót GKG hefur heldur betur fest sig í sessi sem undanfari Meistaramótsins. Hugmyndin er sú að niðjar spili saman, þ.e. barn, faðir/móðir, afi/amma en annarskonar fjölskyldutengsl ganga líka upp.

Keppnisfyrirkomulagið er punktakeppni með greensome fyrirkomulagi, sem felur í sér að báðir liðsmenn slá af teig og skiptast síðan á, þannig að sá sem ekki á upphafshögg slær annað högg. Lið eiga að vera þannig skipuð að annar liðsmaður sé afkomandi hins eða tengdabarn. Mótsstjórn getur samþykkt annarskonar fjölskyldutengsl. Forgjöf liðs verður 40% af leikforgjöf þess sem hærri hefur forgjöfina og 60% af forgjöf þess sem lægri hefur hana.

Verðlaun verða veitt fyrir efstu sæti, nándarverðlaun á öllum par 3 holum og súpa og brauð að leik loknum.

Þátttökugjöld renna óskipt til barna- og unglingastarfs GKG

Ræst verður af öllum teigum kl. 08:30. Skráning í mótið er hafin á golf.is (smellið hér). Mótstjaldið er kr. 9.500,- fyrir liðið.