Það er nánast algildur misskilningur að forgjafaröðun á golfvöllum sé raðað eftir erfiðleikamati, þ.e. að erfiðasta hola vallarins sé með erfiðleikastuðul 1 og auðveldasta holan með erfiðleikastuðulinn 18. Tilgangur með forgjafaröðuninni er að skapa sem réttlátastan grundvöll fyrir holukeppni milli kylfinga með mismunandi forgjöf. Leiki kylfingar með mismunandi forgjöf holukeppni er markmiðið að dreifa forgjafarmismuninum sem víðast um völlinn og forðast það að forgjöf sé á samliggjandi holum.

Golfsamband Evrópu (EGA) gefur út leiðbeiningar um það hvernig fara skuli að við röðun forgjafarhögga. Vallarnefnd GKG hefur endurmetið forgjafaröðun Leirdalsvallar samkvæmt þeim leiðbeiningum og má sjá nýja forgjafaröðun á meðfylgjandi mynd.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér leiðbeiningar EGA fylgja þær hér á eftir:

Leiðbeiningar EGA:

Til að tryggja samræmi meðal golfklúbba mælir EGA með því að úthlutunin taki mið af eftirfarandi:

[checklist]
  • Viðurkennd staðreynd er að röðun á forgjafartöflu hefur í raun engin áhrif á Stableford árangur (útreikning á skori í punktum) og þar með á forgjafarlagfæringar samkvæmt forgjafarkerfi EGA.
  • Það er mjög mikilvægt í holukeppni með forgjöf milli kylfinga að forgjafarhöggin, sem gefin eru og þegin, dreifist á allar 18 holurnar án tillits til forgjafarmismunar á milli kylfinganna.
  • Þetta næst best með því að úthluta höggum með oddatölu á erfiðari 9 holurnar, venjulega þann helminginn sem er lengri (og þá miðað við PAR hvors hluta), og jöfnu tölunum á hinar 9 holurnar.
  • Hve holan er „erfið“, miðað við PAR, skiptir máli við niðurröðunina. Hve hola er „erfið“ má meðal annars finna út frá “bogey”- hluta vallarmats eða þá með samanburði á meðalskori hjá hópi klúbbfélaga við PAR (t.d. einstökum forgjafarhópum).
  • Reynið að fá fram eina og sömu forgjafartöflu fyrir alla teiga og karla sem konur. (Í praxís er ráðlegt að byrja á teigunum sem mest eru leiknir (oftast gulir teigar) og ath. svo hvort sú röð hæfir öðrum teigum.)
  • Leikmaður sem á að þiggja forgjafarhögg mun almennt þurfa fyrsta högg til jöfnunar á erfiðustu PAR 5 holunni og síðan á erfiðustu PAR 4 holu, því næst á öðrum PAR 5 holum. Næstar í röðinni eru PAR 4 holur og loks PAR 3. Mjög erfið PAR 3 hola kann þó að eiga forgang yfir PAR 4 holu.
  • Erfiðar holur eru yfirleitt PAR 5 holur þar sem 3 högg nægja ekki frá teig á flöt fyrir meðalkylfing, PAR 4 holur þar sem 2 högg nægja ekki meðalkylfingi frá teig á flöt og langar PAR 3 holur þar sem meðalkylfingur á erfitt með að ná flöt í einu höggi eða hitta hana vegna lengdar.
[/checklist]

Úthlutun og niðurröðun forgjafarhögga í töflu fyrir 18 holu golfvöll gæti þá verið á þessa leið:

[checklist]
  • Skiptið holunum 18 upp í sex þriggja holu flokka; 1,2,3 síðan 4,5,6, svo 7,8,9 o.s.frv.
  • Röðunarnúmer 1 til 4 skal ekki setja á holur 1,2,3 eða 16,17,18.
  • Samtala númera í hverjum 3 holu flokki ætti að vera sem næst 27 (oddatölur) eða 30 (jafnar tölur).
  • Sé númer 1 notað á fyrri 9 holunum, ætti að nota númer 2 á seinni 9 holunum.
  • Raðið þá öllum oddatölunúmerum á þær fyrri og jöfnu númerunum á þær seinni, eða öfugt.
  • Slík skipting milli helminga er einnig æskilegust með tilliti til níu holu umferða.
  • Forðist að setja einhver af númerum 1 til 6 í röðinni á samliggjandi holur.
[/checklist]