Hæ hæ og gleðilegt vor kæru félagar
Þar sem Lóan er komin og styttist óðum í að golfsumarið hefjist þá er ekki seinna vænna en að koma sér í gírinn. Við hjá Golfskóla GKG erum að hefja ný námskeið í apríl og hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á birgirleifur@gkg.is
Sjá nánar um námskeið hér að neðan:
Hádegisnámskeið – áhersla á sveifluna og stutta spilið
Fjögurra skipta námskeið milli kl. 12-13 á þriðjudögum eða fimmtudögum í inniaðstöðu GKG í Kórnum.
Gert er ráð fyrir að hámarki fimm nemendum per kennara, en hámarksfjöldi er 10 manns per námskeið.
Tímabil: 5. apríl – 26. apríl. 7. apríl – 28. apríl.
Kennarar eru Derrick Moore og Haukur Már Ólafsson, PGA golfkennarar
Helgarnámskeið – áhersla á sveifluna og stutta spilið
Fimm skipta námskeið og hægt er að velja tíma, 10-11, 11-12, 12-13 og 13-14 á sunnudögum í inniaðstöðu GKG í Kórnum.
Gert er ráð fyrir að hámarki fimm nemendum per kennara, en hámarksfjöldi er 10 manns per námskeið.
Tímabil: 10. apríl – 8. maí.
Kennarar eru Hulda Birna Baldursdóttir og Hlöðver Guðnason, PGA golfkennarar
Vorkveðja,
Golfkennarar GKG